Lokapróf nálgast og tóm gleði…..

apríl 30, 2006 at 10:20 pm (Uncategorized)

Er búin að vera að vinna og læra alla helgina sem er bara stuð eða þannig en þetta fer að taka enda, fer í síðasta prófið mitt 15. maí. Ekki samt búin að vera nógu dugleg að læra sökum ömurlegra nágranna. Alltaf gott að skella skuldinni á aðra :) En þetta er samt ekkert grín þetta fólk sem býr hérna við hliðina á mér er búið að vera með partý um hverja helgi síðan þau fluttu inn og teknó tónlist dauðans hljómar um íbúðina mína fram að hádegi næsta dag.. Ætti kannski að prufa að banka upp á og bjóða mér í næsta partý og komast af því hvernig þau fara að þessu, ég hef alla vegna ekki svona mikið þol að ég geti djammað fram að hádegi daginn eftir. Kannski er aldurinn bara málið :) Get líka ekki beðið eftir því að flytja hvenær sem það verður en vonandi í sumar.

Hitti Hönnu vinkonu á föstudaginn og við fórum út að borða á Nings nammi namm svo gisti hún hjá mér á laugardags nóttinni og við spössuðumst fram undir morgun, hlógum að hlutum sem eru örugglega alls ekki fyndnir nema þegar maður er með svefngalsa. Sem betur fer vorum við bara einar svo enginn veit hvað við erum miklir kjánar. Takk fyrir nóttina Hanna mín..

Fyndið að þegar maður á að vera að læra þá finnur maður sér ýmislegt annað betra að gera, hluti sem maður mundi annars ekki nenna að gera. Er búin að gera furðulegustu hluti um helgina eins og að þrífa bílinn, þrífa íbúðina og fékk mér svo labbitúr við fjöruna í Kópavogi í dag (smá einkahúmor) Hanna veit hvað ég er að tala um :) Semsagt allt annað en að vera að læra. Hvað er málið svo þegar maður loksins sest niður og byrjar þá getur maður ekki hætt :) Spurning um að kennarar taki sig saman og fari að kenna e-ð skemmtilegra námsefni. Það er alla vegna alls ekki mér að kenna að mér finnist þetta svona leiðinlegt hehe..

Harpa er búin að vera hjá pabba sínum alla helgina og tók upp á því að fá ælupest á laugardags nóttinni. Púff vona að ég sleppi enda svo hraust. 7…9..13.

Er að fara í fyrsta prófið mitt þann 2 maí í sögu. Vildi að ég hefði meiri áhuga á þessu en well verð að fara að lesa :( Hef kannski e-ð meira spennandi að segja næst.

Svanfríður

Allt er nú til… grey dýrið :)

Permalink 2 Ummæli

Þá hefst gamanið

apríl 30, 2006 at 5:32 am (Uncategorized)

Hæhæ jæja þá er búið að pína mann til að blogga :) Þetta  austfirðinga lið sér til þess. Jóhanna vinkona ber algjörlega alla ábyrgð á þessu. Hef ekki mikið að segja enda kl að verða hálf sex um morguninn og ég orðin frekar þreytt eftir allt erfiðið sem fylgir því að búa til blogg, vona bara að sumir séu sáttir enda öll nóttin búin að fara í þetta :) Fékk semsagt óvæntan gest til mín sem ætlar að sjá til þess að ég bloggi. Annars lítið að frétta er að fara að vinna eftir 4 og hálfan tíma… jibbí og held að ég ætti að fara að koma mér í bælið. Kem með dúndur blogg á morgun hehe :)

Ég og litla skvísan mín :)

Permalink 1 ummæli

Hello world!

apríl 30, 2006 at 3:45 am (Uncategorized)

Welcome to WordPress.com. This is your first post. Edit or delete it and start blogging!

Permalink 1 ummæli