Sveitasælan um helgina..

maí 23, 2006 at 1:14 am (Uncategorized)

Þetta var rosalega skemmtileg helgi. Aflöppun og djamm :) Og ekki leiðinlegt að hitta allt þetta gamla pakk aftur. Sjá hvað það er búið að byggja mikið þarna.. nú er Egilsstaðir ekki lengur lítill bær. Og ekkert smá mikið af flottum húsum. Spurning um að kaupa eitt og flytja til Egilsstaða í ellinni. Komst samt af því að það eina sem maður getur gert þarna er að keyra hring eftir hring í bænum eða alla vegna þegar það er ekki gott veður..

En svona var helgin í stuttu máli…

Hittum pabba gamla og fleira skyldfólk.

Keyrðum næstum því á þrjú hreindýr á leiðinni austur sem voru að þvælast fyrir á veginum.

Vaknaði með satans hundinn sem Begga var að passa inn í herberginu mínu á laugardaginn og fékk nett áfall.

Ætlaði að kíkja á Eskifjörð meðan Begga var að vinna en þar sem Jóhanna svaf svo lengi kíkti ég á menninguna á Egilsstöðum í staðinn og fór í ljós.

Jóhanna kom upp í Egilsstaði og við fórum út að borða, spjölluð saman og skoðuðum gamlar myndir. (Giftingin hennar Lilju rifjuð upp ;) )

Héldum teiti sem fullt af góðu fólki langði leið sína í aðeins til að hitta mig *djók* 

Sumir fóru fyrr heim en aðrir sökum þreytu… hóst.. hóst…

Hitti Öbbu sem var rosalega gaman enda langt síðan við hittumst síðast.

Rifjuðum upp allan þann skandal sem við gerðum þegar við vorum *litlar* lagarfljótið og bílinn hennar Lilju, innbrot í autt hús og margt annað fáránlegt ;)

Kíktum á Svart hvítu hetjuna þar sem var feikna stemming. Hitti þar gömul bekkjasystkini, fyrrverandi mág og mágkonu ásamt fullt af góðu fólki.

Var ofsótt af útlending og við Begga gerðumst lessur til að redda mér frá þeim vandræðum.

Okkur Öbbu tókst að detta í hálkunni þessa stuttu leið í partýið sem var í Sunnufelli og ætluðum ekki að geta staðið upp sökum ölvunar og hláturs :)

Fór í partý þar sem ég djammaði meðal annars með pabba vinkonu minnar… bara fyndið :)   

Hringdi í *strák sem ég þekki* og var e-ð væmin… svona fer áfengið með mann :/ Hver hefur svo sem ekki lent í því ;)

En alla vegna frábær helgi í alla staði… nú verður maður bara að fara að gera þetta oftar :) Enda nauðsýnlegt að hvíla sig á borg óttans af og til þótt að það hafi verið mjög gott að koma aftur heim. Er strax farið að hlakka til að fara aftur í júlí, þá verður líka gott veður.. Kannski maður nái þá að draga einhverjar borgar rottur með sér og sanna það hvað austurland er æðislegt. 

Takk fyrir góða helgi :) Og takk fyrir mig Begga… gistinguna og allt samam :)  Þúsund kossar :-*

Setti inn myndir ;) En sumar eru bara alls ekki góðar kannski vegna þess að myndatökukonan var ekki í sínu besta ástandi…

Permalink 10 Ummæli

Er rokin til Egilsstaða :)

maí 19, 2006 at 2:38 pm (Uncategorized)

Hæ við systkinin erum að leggja að stað til Egilsstaða… Er bara að bíða eftir því að Gummi sé búinn í sturtu. Allt Fríðu vinkonu að þakka að ég get farið. Elska þig Fríða mín :-* Bogga og Jóhanna það er spurning að hafa smá hitting um helgina, við Begga ætlum að detta í það ;) Diddirí….. Kem með geggjaðar fréttir eftir helgi og fullt af myndum…

Ein sem er að farast úr spenningi…………..  og rokin í ríkið að kaupa öl ;)

Permalink 1 ummæli

Hversu vel þekkið þið mig????

maí 18, 2006 at 2:50 pm (Uncategorized)

Það er ekkert að gera í vinnunni svo ég bjó til smá próf um mig :)

TAKA PRÓF

Permalink 3 Ummæli

Miðvikudagur til mæðu..

maí 17, 2006 at 9:48 pm (Uncategorized)

Jebb kominn miðvikudagur og ég var ekkert smá spennt að fá að vita með Búseta íbúðinar sem ég var að sækja um en neinei ég var í 37 sæti með íbúðina í Kóp og 22 í Hafnafirði. Smá pirringur vegna þessa í dag. Skil ekki hvernig ég gat verið í 13 sæti í nóv og svo svona neðarlega núna argg.. En þá er bara að búa aðeins lengur í harlem og sætta sig við allt útlendingapakkið sem býr hér :(  Helvítis útlendingar… Hef ekkert á móti þeim finnst bara verið komið nóg af þessu liði til Íslands.. Við t.d í Húsasmiðjunni þurfum að fara að læra Rússnensku því það er ekkert smá mikið af rússum sem koma að versla hjá okkur…. Og svo tala þeir litla ensku og benda bara og gera einhverjar handahreyfingar. Ég er nú fljót að forða mér ef ég sé einhvern koma… hmmm er ekki komið kaffi bara!! Hehe :)

Skrítið að vera búin í prófunum, eins og það var búið að vera mikið að gera og nú er bara ekkert að gera og maður chillar bara öll kvöld.. ótrúlega kósý :) Silvía nótt skiluru á morgun og ég er soldið spennt að sjá hvort hún komist áfram.. Stefnan tekin á grill hjá Fríðu og Danna ef erfinginn verður sáttur við það. Og svo geðveikt djamm um helgina þar sem Dóra vinkona er að fara að halda upp á 25 ára afmælið sitt shit hvað maður er að verða gamall og núna er ég bara sátt við það að eiga þó ekki afmæli fyrr en í des :) Nægur tími til að undirbúa sig fyrir sjokkið.

Var annars ofur dugleg í dag… fór í rætina og borðaði bara hollan mat og kíkti í ljós þar sem múttan mín var svo elskuleg að bjóða Hörpu á einhverja skólaskemmtun eftir vinnu. Og ég er eins og epli núna :)

Jæja þetta er orðið gott í bili…

Permalink 3 Ummæli

Spennufall..

maí 16, 2006 at 2:56 am (Uncategorized)

Prófin eru loksins búin og þvílíkur léttir ;) Fór í tvö próf í dag.. fyrst í sögu og svo ísl og gekk bara skít sæmilega. Hef tekið þá ákvörðun að fara ekki í sumarskóla, ætla að njóta þess að vera til og slappa af í sumarfríinu með Hörpu og öðru góðu fólki :) Skoða Vestfirðina og auðvitað kíkja austur á Egillstaði og fá áfall hvað það er búið að byggja mikið þar.

Annars átti ég bara ágæta helgi þrátt fyrir mikinn lærdóm. Hitti hana Beggu sem var mjög gaman og nú er það pottþétt að hún og Hjalli flytji suður og ég er bara mjög spennt og get varla beðið eftir að fá hana í borgina.. Þótt það þurfi að kenna henni ýmisleg hehe :)

Okkur Beggu datt í hug að reyna að smala saman öllum gamla vinakvennahópnum (Jóhönnu, Biddu, Boggu, Öbbu, Beggu og að sjálfsögðu mér) í júlí þegar ég verð á Egs og fara í Atlavík grilla, tjalda o.fl ;) Þannig ef þið lesið þetta þá megið þið endilega kommenta hvort það sé ekki örugglega áhugi fyrir því??

Þá er það alvara lífsins sem tekur við og nú er að fara að taka sig á í mataræðinu og fara að æfa á fullu og er ég hér með hætt að borða nammi :) Fór í dag og keypti mér kort í Sporthúsinu og verslaði bara hollan mat… kjúlla og geðveikt mikið af grænmeti. Aumingja strákurinn í Krónunni var nýbyrjaður á kassa og var alveg í vandræðum með það hvað allt þetta grænmeti héti sem ég var að kaupa hehe ;) Fyndið samt þegar fólk veit ekki hvað blómkál er.. Fer þetta unga fólk ekki í skólagarða eins og maður gerði *grín* Ætla að vera búin að missa böns af kílóum fyrir Danmerkur ferðina svo ég geti keypt mér helling af fötum…

Annars voða lítið að frétta fór í grill til Hildar vinkonu í dag og hitti stelpur sem ég hef ekki hitt lengi ásamt börnunum þeirra og vá hvað tíminn flýgur frá manni. Allir krakkanir orðnir geggjað stórir. Jæja farin að sofa svo ég sofi ekki yfir mig á morgun :)

Einn kaldhæðinn ljóskubrandari sem ég rakst á….. ;) Muhahaha ;)

Ljóskan kemur í vinnuna einn morguninn hágrátandi.Yfirmaður hennar sem hefur miklar áhyggjur af henni spyr hana hvað sé að hjá henni.

Ljóskan svarar:-Snemma í morgun fékk ég símhringingu þar sem mér var sagt að mamma mín væri dáin.Yfirmanninum finnst þetta mjög leiðinlegt og býður ljóskunni að taka sér frí eins lengi og hún þurfti til að ganga frá málum. Farðu bara heim og slakaðu á og hvíldu þig.

Ljóskan segir þá að henni finnist betra að vera bara í vinnunni.Yfirmaðurinn samþykkir það en segir líka við hana að ef eitthvað komi upp á skuli hún láta sig vita og þá geti hún bara fengið að fara heim.

Nokkrir klukkutímar líða og yfirmaðurinn ákveðjur að tékka á ljóskunni.Hann fer fram af skrifstofunni sinni og sér hana hágrátandi við skrifborðið sitt.Hann hleypur til hennar og spyr:-

Hvað er nú að? Er ekki allt í lagi með þig?

Ljóskan grætur og grætur og styndur út milli ekkasoganna. – ég var að fá hræðilegt símtal frá systur minni.Hún sagði mér að mamma hennar væri líka dáin!!!!!!

Permalink 4 Ummæli

Einu sinni var…

maí 11, 2006 at 11:35 pm (Uncategorized)

Komiði sæl elsku ástardúllunar mínar… Sibbin á þessum fimmtdegi.. enda erfið nótt í gær hehe ;) Það var brjálað að gera í vinnunni hjá mér í dag eða kannski einum of ýkt en alla vegna meira að gera en hefur verið upp á síðkastið. Jíbbí :) Svo brunuðum við mæðgur í klippingu eftir vinnu/leikskóla og létum snyrta hárið á Hörpunni enda ekki vanþörf á þar sem barnið var hætt að sjá út :) Þetta var upp á höfða og Harpa verð endilega að kíkja inn í Fiskbúðina vör eða held að hún heiti það.. því það er ísbjörn þarna inni (ekki lifandi samt) svo þegar ég var að labba þarna inn þá var byrjað að vinka okkur á fullu og ég bara hvaða helv.. hver er þetta?.. Weirdo! Neyðarlegt þegar maður fattar ekki strax hver manneskjan er og ég bara stóð þarna eins og auli. En þá var þetta strákur sem var að vinna með mér á lagernum hjá Pennanum.. Alltaf gaman að hitta fólk sem maður umgekkst einu sinni.. þótt maður muni ekki einu sinni eftir því hehe :) En alla vegna þá fórum við beint úr klippingunni og í Smáralindina því ég var búin að lofa Hörpu að velja sér pils því hún er búin að vera svo dugleg og góð upp á síðkastið.. Líka smá samviskubit hjá samviskusömu mömmunni að vera ekki búin að sinna henni nóg þar sem mér finnst hún búin að vera svo mikið í pössun upp á síðkastið vegna prófanna. En alla vegn þá enduðum við á að kaupa tvö pils og einn bol og svo á leiðinni út þá sáum við að það var verið að mála krakka í framan og henni langaði svo mikið í þannig svo ég gaf eftir og styrkti gott málefni í leiðinni ;)

Svo er bara tóm gleði og hamingja fram undan, á eftir að upplifa eina skemmtilegustu helgi sem um hefur verið getið. Er að fara í tvö próf á mánudaginn ísl og sögu svo minns á ekki eftir að gera neitt annað en að læra alla helgina. Búin að redda fríi í vinnunni og svo fer Harpa til pabba síns á morgun. Spurning um að taka róandi og blóðþynningslyf svo það myndist ekki blóðtappi við heilann *djók* :) Blóm og kransar afþakkaðir…

Hey ætlar einhver á Bubba tónleikana? Mig langar að fara… vill einhver vera menn?? ;) Held reyndar að það sé að verða uppselt. Ef einhver skildi ekki vita hvenær þeir verða þá eru þeir 06.06.06. Kallinn að verða fimmtugur.. shit :)

Begga er að koma í bæinn á morgun svo ég verð nú að gefa mér tíma til að hitta hana.. Fá allt slúðrið af austan beint í æð. Smá vítamíns sprauta og fara svo heim að læra… Var samt geðveikt fúl þegar hún hringdi eða ekki að hún væri að koma heldur að ég þurfti endilega að vera í prófum þessa einu helgi sem hún er í bænum en það styttist í að kellan flytji í borg óttans ;) Jæja hætt að bulla í bili og farin að lesa Egils sögu :(

Köttur út í mýri, setti upp á sig stýri, út er ævintýri….

Elsku litla sæta fiðrilda stelpan mín :)

Permalink 1 ummæli

Mánudagur…

maí 8, 2006 at 11:55 pm (Uncategorized)

Það er búið að vera geðveikt veður í dag. Var að vinna eins og alla aðra daga og hitinn fór í 35 gráður í ljósadeildinni svo okkur er bara farið að hlakka til þegar veðrið verður betra eða þannig :( Annars er það að frétta að það eru tvær íbúðir að losna hjá Búseta, ein í Kópavogi 3 herbergja og önnur í Hafnafirði sem er 4 herbergja og ég ætla að sækja um þær báðar fæ svo að vita hvað kemur úr úr því 17 maí…. bið bara til guðs að ég fá aðra þeirra :) Svo tókum við Harpa bílasölurúnt eftir vinnu í dag og hún Harpa er sko alveg sammála að mamma þurfi að fá sér nýjan bíl :) Og svo lá leiðin beint af bílasölurúnti til Hildar, Egils, Auðar og Markúsar í grillmat sem var bara gaman allt of langt síðan við hittum þau.  Fékk þessa spurningu frá Hörpu eftir matarboðið sem ég er reyndar búin að fá ansi oft upp á síðkastið… Þú átt engann mann mamma.. af hverju? Snillingur að vera alltaf að minna mömmu sína á það :(  Annars ekki mikið að frétta er bara að hugsa um skólamálin mín langar að fara að klára þennan helv… stúdent :) Ætla ekki að verða eilífðarstúdent.. Svo eru allir að plana evróvision partý… Get ekki beðið eftir að sjá Silvíu og hrynja í það :Þ Á það skilið eftir prófin. Svo önnur pæling… ætlar einhver á þjóðhátíð í ár?? Spurning um að skella sér áður en maður verður of gamall til að fara, maður verður að upplifa þetta einu sinni, ekki satt? Best að halda áfram að læra landafræði… Smá fyndið hérna að lokum :)

TOPP TÍU listinn yfir það sem karlmenn mundu gera ef þeir væru með píku í einn dag:

  1. Byrgja sig upp af agúrkum og bönunum.
  2. Sitja á hækjum sér yfir spegli í a.m.k klukkustund.
  3. Athuga hvort þeir geti nú loksins farið í splitt.
  4. Athuga hvort í raunog veru sé hægt sé hægt að skjóta borðtenniskúlu metra vegalengd með henni.
  5. Krossleggja lappir án þess að hagræða kynfærunum fyrst.
  6. Lenda á séns á vínveitingastað fyrir hádegi.
  7. Fá raðfullnægingu og heimta aðra fyrir svefninn.
  8.  Fara í rannsókn til kvennsjúkdómalæknis og láta taka hana upp á myndband.
  9. Biðja til guðs um að fá brjóst líka.
  10. Loksins finna G-blettinn.

TOPP TÍU listinn yfir það sem konur mundu gera ef þær væru með tippi í einn dag:

  1. Fá stöðuhækkun.
  2. Fá blowjob.
  3. Skilja hvað er svona áríðandi við að fá úr honum.
  4. Pissa standandi og halda uppi samræðum við aðra karlmenn á meðan.
  5. Uppgötva af hverju bunan lendir stundum fram hjá.
  6. Fara að sofa strax eftir kynlíf í stað þess að ræða sambandið.
  7. Klóra sér í kynfærunum á almannafæri án þess að hafa áhyggjur af því hvort að einhver taki eftir.
  8. Hoppa upp og niður með standpínu til að komast af því hvort það sé eins kjánalegt og að upplifa það og að sjá það.
  9. Gera sér grein fyrir vísindalegri skýringu þess að ljósbrot í reglustriku gerir það að verkum að karlmanni sýnist hún mæla getnaðarlim a.m.k. þremur sentímetrum lengri en hann er í raun og veru er.
  10. Loksins fatta hvernig það er að vera með heilann í klofinu.

Permalink 7 Ummæli

Það er komið sumar…

maí 6, 2006 at 4:21 pm (Uncategorized)

Hæbbs.. Ég á að vera að læra en þau auðvitað verð ég að gera e-ð annað :( Það er komið sumar!!! Geðveikt veður úti og allir í sólskins skapi, svo réðst á mig býfluga sem er bara merki um að nú sé veturinn búinn….. loksins ;)  Alþjóðlegi hlátursdagurinn og megrunarlausi dagurinn er í dag svo ég hvet alla til að hlægja sig máttlausa og borða á sig gat. Er farin að læra í góða veðrinu *snökt* svo ég geti nú átt kosý kvöld :) En tékkið á þessum hlátri, hann er bara fyndinn :)  

 http://www.starterupsteve.com/swf/koty.html

Permalink Rita ummæli

Alveg að koma helgi

maí 5, 2006 at 1:55 am (Uncategorized)

Áhvað að blogga smá.. Eins gott að hafa það í styttri kantinum annars verður maður skotinn í kaf :) Harpa er öll að koma til og gat borðað í dag án þess að æla vei!! Hefur ekkert getað borðað síðan á laugardaginn svo núna verður rjómi í öll mál hjá henni þar til hún hefur náð fyrri þyngd. En jæja hvað með það þetta er búinn að vera ágætis dagur og ég farin að geta andað rólega eftir allt þetta veikinda ástand púff… Dró Gumma bróðir með mér í dag að reynsluaka Mözdu 6 bílinn og já minns ætlar að fá sér eitt svona stykki þegar minns verður fluttur í aðra íbúð. Lýst líka vel á aðra týpu en hef smá tíma til að hugsa málið :) Gummi bróðir vildi að ég fengi mér Ford mustang en mér finnst hann ekki alveg vera fjölskyldu bíll.. Svo nú er fara og láta skoða gömlu drusluna er bara pínkulítið of sein hehe. Hann átti að fara í skoðun á ágúst í fyrra og vegna þess að ég sé svona sein þá hef ég trassað það. Skammast mín að vera ekki búin að koma þessu í verk og hrædd um að kallarnir á skoðunarstöðinni fara að segja e-ð. Þoli ekki svona leiðindarkalla sem nöldra yfir öllu. Ohhh kona að koma að láta skoða bílinn sinn.. veit sko alveg hvernig kallar hugsa. Sérstaklega eftir eitt atvik sem átti sér stað fyrir ca 4 árum og gerðist á verkstæði. Ætla ekki að segja hvað það var en þið sem vitið það… hlægið bara :) Er með svona netta verkstæðis fóbíu síðan. Svo er ég ekki heldur búin að láta laga bílinn eftir að einhver mamman á leikskólanum bakkaði aftan á mig. Vil taka það fram að það er rosalega ólíkt mér að trassa hluti svona. Soldið fyndið hvað ég er óheppin.. fannst það reyndar ekki fyndið þegar það gerðist.. en fyrst var keyrt inn í hliðina á bílnum svo um leið og ég var búin að laga það bakkaði þessi stelpa aftan á mig. Ætti kannski að reyna fá einhvern til að keyra almennilega á mig þá fæ ég alla vegna meira fyrir drusluna haha. Einhver sem býður sig fram??  lol :)

 Fór á starfsmanna fund í kvöld sem var bara æðislegur og margt mjög spennandi að fara að gerast en ekkert sem ég má tala um að svo stöddu en við getum bara orðað það þannig að ég er ekkert að fara að hætta :) Svo líka gaman þar sem það er kominn nýr verslunarstjóri og eingin önnur en hún Elín sem sér um brúðkaupsþættina Já á Skjá einum. Get ekki beðið eftir því að mega blaðra þessu öllu í ykkur hehe :) Ætla að segja þetta gott í bili og klára ritgerðina mína áður en ég fer að sofa.

Eigið góða helgi :)

Permalink 3 Ummæli

Geðveikur dagur…

maí 3, 2006 at 3:11 am (Uncategorized)

Þetta er búinn að vera svo æðislegur dagur eða þannig. Harpa ennþá veik og er ekki búin að halda neinu niðri. Greyið hún er búin að vera mjög slöpp og ekkert búin að borða. Hætti nú að lítast á blikuna þegar hún ældi öllu þessu litla sem hún var búin að drekka í dag og öllu yfir mig :(  Þá fékk ég lækni heim til að kíkja á hana, en eins og alltaf loksins þegar læknirinn kom þá var Harpa orðin miklu hressari miða við hvernig hún var búin að vera allan daginn. Læknirinn sagði að það væri svona heiftarlegur magavírus að ganga.. Pjakk. Svo við mæðgur verðum heima aftur á morgun og getum haft það kosý horft á barbí og fleira :)

Skrítið hvað fólk er siðferðislega blint eða ég veit ekki hvað á að kalla þetta annað. En alla vegna þá er mikið drama að gerast í kring um mig. Fólk að byrja með fyrrverandi maka vina sinna og annað smekklegt í þeim dúr. Skemmtilegt þegar vinir manns verða allt í einu fóstur mamma/pabbi barna sinna. Svo er ennþá skemmtilegra að fá sms um það að maður sé að tala illa um fólk við fólk út í bæ sem maður hefur ekki einu sinni hitt ;) Það er ekki öll vitleysan eins jahérna. Ég vissi bara ekki að ég væri svona hæfileikarík tíhí..

Annars ekki mikið að frétta, komst ekki í sögu prófið í dag vegna veikindanna á Hörpu og þarf því að fara í sjúkrapróf í því seinna held 15 maí. Ég hef þá alla vegna smá meiri tíma til að læra um þetta helv… sögu dæmi. Er held ég að fá blóðtappa af stressi, ekki gaman að fá prófkvíða. Verð svo stressuð að ég kem engu í verk… skil ekki hvernig ég fer að þessu. Á ennþá eftir að skrifa þessa ritgerð í íslensku sem er um fátækt og svo var ég að skoða þessa bók betur sem ég tók á bókasafninu og hún er e-ð svo asnaleg. Æ kannski ég velji mér e-ð annað til að skrifa um, þetta er bara svona misjafnlega spennandi sem ég má velja um eitt er t.d um það hvort það sé framhjáhald að stunda nektastaði hmm hvar á ég að finna heimildir um það…fara á goldfinger og taka viðtal við einhvern perra. Finnst þér þetta vera framhjáhald?? Veit konan þín þetta?? lol :) En þegar þessi blessuðu próf verða búin þá ætla ég að skella mér í sveitina í afslöppun. Sem ég er búin að ætla að gera allt of lengi og vá ég get ekki beðið. Kannski maður fari á hestbak, kíkja á lömbin og hlaupi um túnin grín er nú ekki alveg svo sveitó. Gummi bróðir ætlar að gerast ljósmóðir í ár og taka á móti lömbum… spennandi að sjá hvernig kallinn stendur sig í því :)

Er með algjöra bíladellu þessa dagana. Langar svo í nýjan bíl og þá kemur mazda 6 mjög sterklega til greina :) Geðveikt flottir bílar eða mér finnst það.. Komin með ógeð á druslunni minni. 

Er ekki örugglega þriðjudagur í dag? Maður spyr sig… er ekki að skilja þetta, líður bara eins og það sé helgi endalaust vegna þess að það er eins og þetta pakk sem býr hérna við hliðana á mér sé alltaf með partý og þau eru ekkert að gera mig geðveika neinei. Held að ég ætti að fara að ráðum eins stráks sem ég þekki, skelli einni blárri mynd í tækið og hækka vel í því og fara á rúntinn í smá tíma. Gæti verið sniðugt sko :) Þá kannski átta þau sig á því hvað það er hljóðbært hérna. Arggg!!!

Permalink 6 Ummæli