Djamm..djamm og brúðkaup :)

júní 27, 2006 at 3:25 am (Uncategorized)

Helgin búin og komið að uppgjöri nei segi svona. En ég djammaði á föstudaginn með Lise og við byrjuðum bara að drekka heima hjá henni og svo var kíkt í partý í Hafnafirði til Hönnu og Fúsa og þar lénti hún Lise á séns með geðveikum töffara hehe ;)  og þaðan var svo haldið á Cafe Aroma í Hafnafirði og svo að sjálfssögðu í bæinn á Cafe Victor.. ég elti útlendingana finnst þeir svo geðveikt hot ;) Sumir áhváðu að vera bara í dyrunum að hössla í staðinn fyrir að koma með fólkinu inn. Fínt kvöld þótt að það skemmtu sér kannski ekki allir eins vel :) Var soldið full þetta kvöld og þurfti víst aðstöð við að komast úr fötunum þegar heim var komið…. Guð minn góður :/

Svo var það laugardagurinn þá fór ég í brúðkaup til Þóru og Bjarka og þetta var svo fallegt og flott allt saman hjá þeim athöfnin, þau alveg glæsileg bæði tvo og flott veisla hjá þeim að hálfa væri nóg. Nokkur tár felld við athöfnina…. Innilega til hamigju aftur ;)  Indislegt að sjá fólk svona ástfangið og hamingjusamt.. Kannski.. já kannski verður maður einhvern tímann svo heppin að elska einhvern meira en orð fá lýst og kannski ganga í heilagt hjónaband :)     

En svo um kvöldið þá kom Lise til mín og við drukkum okkur til og létum svo Gumma æðislega bróðir minn (sem gerir allt fyrir systir sína) skutla okkur í partý í Grafarvoginn. Ég held að ég hafi látið alveg eins og fífl á leiðinni í partýið… vonandi talar vinkona Gumma við hann aftur. Það var ýmislegt gert í þessu partýi.. t.d reykti skór þar, fólk át chilli og síðan var e-ð rafmagnstæki þarna sem maður fékk stuð úr og það var látið ganga á milli fólks… jebb hevy stuð :) Einhver gaur drapst upp í herbergi og ég var að reyna að gefa honum rís súkkulaði en hann vildi það ekki hehe svo ég smellti bara mynd af kallinum. Held að mér hafi samt tekist að vekja hann með brussuganginum í mér. Æ man nú ekki alveg allt en Gummi bróðir sótti okkur Sigga og Lise og við kíktum e-ð á djammið í bænum svo var farið allt of seint heim.

Þrátt fyrir þetta svaðalega djamm bæði fös og lau tókst mér að mæta í vinnu báða dagana gjörsamlega ósofin. Ekki kannski það gáfulegasta og nú ætla ég að fara að slaka pínu á. Svaf bara í 17 klukkutíma á sunnudeginum.. Ætlaði bara aðeins að leggja mig og ætlaði að vakna 9 um kvöldið en neinei ég vaknaði um 5 leitið um nóttina… geðveikt óþægilegt en ég skreið svo aftur upp í og svaf til hádegis í dag… Geri aðrir betur  ;) Þetta hefur nú ekki komið fyrir síðan ég veit ekki hvað og þessi svefn er líka e-ð að segja til sín núna vegna þess að klukkan er að verða hálf 4 og ég er enn á fótum :)  Stefnan sett á útileigu um næstu helgi í Húsafell með Fríðu, Danna og vonandi Sigga ef hann þorir. Það eru ógeðslega margir mávar hérna fyrir utan núna… kannski partý hjá þeim hehe. En vá hvað mig hlakkar til þegar veiðileyfið verður gert á þá eða var ekki verið að tala um það.. mig minnir alla vegna að ég hafi heyrt það einhvers staðar. Þá get ég skotið þá af svölunum hjá mér íha hehe :) Pabbi geturu lánað mér byssu :) En jæja búin að henda inn myndum frá því um helgina. Ætla að reyna að sofa smá svo ég verði ekki ónýt á morgun…

Þangað til næst….

 Svanfríður nátthrafn :)

Permalink 2 Ummæli

Langt síðan síðast…

júní 22, 2006 at 10:16 pm (Uncategorized)

Sælt veri fólkið… ;) Ég hef ekki nennt að blogga núna síðustu daga.. Alveg hámark létinnar held ég. Nei nei er þetta ekki bara þessi tími.. Hver nennir að hanga fyrir framan tölvuna í eins góðu veðri og hefur verið eða þannig. Sólin lét nú samt sjá sig í gær og í dag þannig að nú er kannski loksins komið sumar. En alla vegna þá er ég á lífi þið sem hafið verið að velta því fyrir ykkur ;) Síðasta helgi var rosalega fín, við Harpa hittum Lise, Ernu og Maríu 17 júní og fórum með þeim í bæinn svo var auðvitað kíkt í mat til múttu sem er alltaf snilld enda góður kokkur þar á ferð :) Svo vildi erfinginn kíkja í Kópavoginn á Rútstún á leiðinni heim og hoppaði þar frá sér allt vit og rotaðist þegar heim var komið. Svo hittum við Lise og Ernu líka á sunnudeginum og kíktum með þeim í Húsdýragarðinn, rúntuðum og enduðum á Kfc í Mosó og vorum þar soldið lengi þar sem stelpunar voru ekki alveg á því að fara heim :) Týpísk mömmu helgi… tók videó bæði kvöldin og hafði það geggjað kosý… Svo er öll vikan búin að fara í Brúðkaups undirbúning… nei ég er ekki að fara að gifta mig hehe… Er að fara í brúðkaup á laugardaginn til Þóru og Bjarka. Þóra var að vinna með mér hjá Pennanum, bara svona fyrir þá sem vita það ekki. Og er búin að vera að vesenast eftir vinnu nánast alla vikuna að finna mér föt og fleira. Búin að redda öllu… mikill léttir ;) Því það er svo týpíst ég að vera að redda öllu á síðustu stundu :) En nei ég er að reyna að snúa því blaði við, reddaði meira að segja vegabréfunum okkar Hörpu í vikunni. Takk Fríða mín fyrir að vera svona þolinmóð að nenna að búðarápast með mér.. Við erum bara snillingar saman.. enda með sama aulahúmorinn.. Spól…spól hehe. Svo kíkti ég á Ásdísi, bumbubúann og co í vikunni.. alltof langt síðan ég hitti þau. Svo ég er nú búin að koma ýmislegu í verk þessa vikuna :)  Það er föstudagur á morgun íhaaa… ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. Helgin alveg fullbókuð hjá mér. Kaffihús á fös með Lise og kannski smá djamm með Hönnu og Fúsa eða alla vegna að kíkja á liðið, brúðkaup á lau og djamm með Lise og svo er Hanna vinkona í bænum og það er eins gott fyrir hana að djamma með mér ;)  Og svo er spurning hvort það verði ekki bara koju fyllerí hjá okkur Rakeli ljósálfi á sunnudeginum þar sem við erum báðar í fríi á mánudeginum. Ég á ekki við áfengis vanda að stríða… nei hvaða vitleysa ;) Svo er að fara að standa við stóru orðin… var búin að lofa að skanna inn myndir frá því maður var ungur og vitlaus.. Þetta er allt í vinnslu Hanna mín ;) Ég held að ég sé farin að kalka þótt að það sé kannski full snemmt. Ég er búin að týna veskinu mínu svo oft upp á síðkastið að þetta er hætt að vera fyndið. Mér tókst að gleyma því í 10-11 í dag og svo gleymdi ég ljósunum á bílnum og það er líka búið að gerast soldið oft hehe. En ég lét bara strákana í vinnunni hafa pínu fyrir mér. Þeir gerðu heiðarlega tilraun til að ýta honum í gang en það gekk ekki og þá var ekkert annað en að kaupa sér startkapla til að koma druslunni í gang. Og þeir munu eflaust koma að góðum notum ef þetta heldur svona áfram :)  Það er einhver pirringur í mér…. gamlir fortíðar draugar að elta mig. Hvað er það??… Pæliði í því hvað það væri þægilegt ef það væri hægt að deleta úr heilanum á sér öllu sem maður vill ekki muna og situr í manni. Já það væri bara ljúft. Spurning líka að dæma ekki alla eftir sinni reynslu. Jæja cut hér áður en þetta fer að verða of persónulegt :) Jæja ætli maður ætti ekki að fara að gera e-ð að viti. Var búin að lofa sjálfri mér því að fara að sofa snemma einu sinni… Því ekki mun ég sofa mikið um helgina ;) Spurning um að ná úr sér vonda skapinu og hamast á þessu ljóta tæki sem ég festi kaup í og kannski maður taki eina æfingu með Ágústu… Lyftum lóðum og brennum fitu. Já nú vildi kannski einhver vera fluga á vegg.. því þetta gæti orðið spaugilegt hehe :)  

 Svaní fitubolla kveðjur í bili….

Permalink Rita ummæli

Hvað er eiginlega að??????

júní 15, 2006 at 1:28 am (Uncategorized)

Rakst á þetta í dag og við hlóum bara smá af þessu í vinnuni…. Þarna kemur ástæðan fyrir því að mér er ekki vel við útlendinga. Þeir eru bara skrítnir og ógeðslegir :) Pjakk…. En alla vegna góð auglýsing fyrir Byko hehehe ;)

Kíkið á þetta og lesið fréttina….         http://flass.net/fullfrettir.php?id=882&p=1

Permalink 4 Ummæli

Shitturinn titturinn….

júní 12, 2006 at 3:00 pm (Uncategorized)

Jæja helgin búin og komin mánudagur. Og bara fyrir ykkur hin sem vinnið alla mánudag þá langaði mér bara að segja ykkur að ég verð í fríi alla mánudaga í sumar…. liggaligga lái ;) Bara ljúft, sem þýðir að ég verð í þriggja daga fríi aðra hverja helgi. Fór í afmæli til Fúsa hennar Hönnu á laugardaginn það var mjög fínt þótt að kvöldið gæti hafa farið öðruvísi en stundum fer bara allt í fuck þegar vín er haft um hönd :) Svo fórum við á ball með Pöpunum og þeir eru auðvitað algjörir stuðboltar. Annars stuð svona það sem ég man eftir eða öllu heldur vil muna eftir. Hélt ég hefði týnt veskinu mínu og varð geðveikt pirruð þar sem ég týni aldrei neinu, hringdi og lét loka því og fann það svo á eldhúsborðinu heima mér til mikilla ánægju :)   Hitti Þóru, Sigríði og Bryndísi á ballinu, sem var auðvitað bara gaman enda langt síðan síðast :) En hitti þær nú ekkert allt of mikið sökum smá vesens. Sá kærastann í nýju ljósi… hef nefnilega aldrei séð hann svona ölvaðann áður. Ferð til Egilsstaða plönuð og eins gott að borgar rottunar tvær standi við stóru orðin ;)  Helgin 14-16 júlí… Siggi og Hilli….bara svona að minna ykkur á það!!! Svo kíktum við Siggi í bíó í gær á O men og verð nú að segja að hún var ekki eins góð og ég hélt. Þótt svo að ég hafi næstum tekist á loft hehe… Jæja farin að gera e-ð að viti fyrst ég er í fríi… Henti inn nokkrum myndum frá djamminu um helgina :)

Permalink 4 Ummæli

Verður maður ekki að gera þetta einu sinni?

júní 9, 2006 at 6:01 pm (Uncategorized)

Er lasin heima og leiðist endalaust mikið :(   Áhvað að prufa þetta dæmi fyrst ég hafði ekkert betra að gera…

Hæð: Ég var einhverntíma mæld 165cm.
Hárlitur: Brúnn.
Augnlitur: Blár.
tattoo: Nibb og ætla ekki að fá mér tattoo.
Í hverju ertu? Uhhh ég er nú bara í svörtum buxum og bláum adidas bol.

Á hvað ertu að hlusta? Er að hlusta The Cure í auglablikinu. En tónlistar smekkur minn er mjög víður alveg frá væmnu og yfir í harða rokkið :)
Hvernig bragð er upp í þér? Er með fjólublátt extra upp í mér svo ætli það sé ekki bara lakkrísbragð. 
Hvernig er veðrið hjá þér? Það er bara alveg sæmilegt..
Hvernig líður þér? Svona skít sæmilega er samt lasin en er samt ekkert að grenja yfir því.
Verðuru bíl-, flug- eða sjóveik(ur)? Nei.. eða kannski bara sjóveik… lítil reynsla af því. 
 
Hefuru slæman ávana? Já fæ mér stundum að reykja, naga neglunar og segi djók í annari hvorri setningu….
Sátt(ur) við foreldra þína? Já já ætli það sé ekki bara best að segja sem minnst um það :)
Finnst þér gaman að keyra? Já oftast. 
Kærasti? Já það held ég bara ;)
Kærasta? Neinei.
Börn? Já, Harpa, fallegasta barn í heiminum
 
Átt í erfiðleikum með að jafna þig á ein-hverri/hverjum? Já kannski pínu.. En tíminn læknar öll sár :)
Verið særð(ur)? Já þekki það.
Mesta eftirsjá þín? Já sé mikið eftir einu en kýs að skila þessu auðu.
Á hvaða tónlist ertu að hlusta þessa dagana? Já það er nú soldið margt en t.d. James Blunt, Pearl Jam, Norah Jones, U2, Bubba, The Cure, Damin Rice……og svo margt fleira. 
Ef þú værir litur, hvaða litur væri það? Sennilega svartur eða fjólublár  

 Hvað gerir þig ánægða(n)? Harpa mín númer eitt, tvö og þrjú …….og eila alveg uppí tíu. En elska líka að vera í góðum félagsskap og að fá gott kúr og kossa ;)

Sjö hlutir í herberginu þínu: Rúmið mitt, náttborð, fataskápur, orbitrek tæki, föt, sería og borðlampi.

Sjö atriði sem þú ætlar að gera fyrir dauða þinn: Mennta mig, búa erlendis, eignast fleiri börn, verða yfir mig ástfangin.. ganga í það heilaga og allur sá pakki, komast í geggjað gott form og taka þátt í fittness hehe (sé það gerast), kaupa mér hús og ferðast mikið.
Hvaða sjö orð segiru oftast? Djók, shit, rassgat, ertu ekki að grínast, jesús minn, jahérna hér og þú veist. 

Reykiru? Já því miður.
Dóparu? Ónei, viðbjóður.
Biðuru til æðri máttarvalda? Nei en mundi gera það ef ég yrði geggjað hrædd. 
Ertu í vinnu? Já vinn í Húsasmiðjunni og hef verið að skólast.
Ferðu í kirkju? Voðalega lítið bara ef það eru jarðarfarir, skírnir, giftingar og þess háttar.

Hefurðu…
..verið ástfangin(n)
? Já jájá….
..lent í alvarlegu slysi? Nei sem betur fer.
..farið í aðgerð? Já ef það telst til aðgerðar að lenda í keisara. 

..synt í myrkri? Hehe bara í sundlaug.
.orðið full(ur)? Já já það hefur komið fyrir.
..farið í fatapóker? Já reyndar en þegar ég var lítil og það voru bara stelpur með mér í honum.
 ..lamið einhvern? Nei ekki sem ég man eftir og sénsinn að ég mundi segja ykkur frá því ef svo væri… *djók*

. .verið lamin(n)? Nei bara einhver ganni slagur þá við bræður mína.                                                                                                                  
..vakað heila nótt? Já já oft og mörgum sinnum.
..komið í útvarpið eða sjónvarpið? Já kom einhvern tímann þegar ég var lítil í einhverjum tónlistar þætti og svo í viltu vinna milljón með pabba Hörpu.
..áttu homma- eða lesbíuvinkonu? Já eða svona meira kunningja.
Drekkuru kaffi? Nei ojj.
Hvernig ilmvatn notaru? Nota nýja ilmvatnið frá Britney þessa dagana.

Á síðustu 24 tímum, hefurðu…
..grátið? úr hlátri
? Nei held bara ekki.
..keypt eitthvað (ekki mat)? Nei alveg róleg að strauja kortið þessa dagana.
..orðið óglatt? Nei. 
..sungið? Nei.
..verið kysst(ur)? Jájá  :)  

..fundið til heimsku? Já kannski smá…
..talað við fyrrverandi kærasta/kærustu? Já reyndar.
..talað við einhvern sem þú ert hrifin(n) af? Já…
..saknað einhvers? Já kannski pínu.

Jæja þá er þetta rugl búið og ég er að spá að fara að góna á Rumor has it…. og poppa mér popp og hafa það geggjað kósý ;)

Eigið góða helgi :)

Permalink 2 Ummæli

Gargandi snilld…

júní 8, 2006 at 1:49 am (Uncategorized)

Fór á Bubba tónleikana í gær og þeir voru bara snilld… Eins og Bubbi orðaði það… þessir tónleikar eru búnir að vera eins og löng fullnæging eins og þegar svínin fá það ;) Fékk netta gæsahúð þegar hann byrjaði að spila. Drakk kannski aðeins of mikið miða við að það var virkur dagur en hverjum er ekki sama. Skemmti mér alla vegna mjög vel Þrátt fyrir allt vesenið sem var á mér eins og bræður mínir orðuðu það :) Lét reyndar sækja mig áður en tónleikarnir voru búnir en það er nú ástæða fyrir því hehe ;) Var með nettan svefngalsa í vinnunni í dag og lét eins og fífl. Piff það er bara hressandi að láta stundum eins og kjáni. Harpa sofnaði mjög snemma í kvöld eða um 7 leitið alveg búin á því svo ég er búin að vera ofvirk hérna heima að þvo þvott og laga til og auðvita horfa á tv þar sem þetta var sannkallað stelpu kvöld á skjá einum. Svo er bara skemmtileg helgi fram undan, kallinn hennar Hönnu Láru að verða hundgamall (30 ára) og ég er búin að lofa að mæta á Papa ball á Nasa svo hafði Þóra samband í dag svo ég verð að hitta gamla Penna gengið líka. Allt að gerast ;) Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Búin að skella inn myndum frá skemmtilegu útileigunni og auðvitað Bubba tónleikunum :)

Permalink Rita ummæli

Dagur kóngsins……

júní 6, 2006 at 1:40 pm (Uncategorized)

Sökum leti og tímaskorts þá hef ég ekki nennt að skrifa inn á þetta blogg soldið lengi. Hef varla nennt að kveikja á tölvunni á kvöldin. Hef frekar kosið að vera geðveikt myndó og er að prjóna mér peysu. Sýni ykkur kannski afraksturinn ef hún heppnast vel. Ekki mikið að frétta eða ekkert sem mig langar að deila með ykkur *djók* Er bara búin að vera mjög löt síðan skólinn var búinn samt á góðan hátt sko.

Fór til Kirkjubæjarklausturs um helgina á gellu bílnum hans bróðir míns :) Snilldar bíll og alveg helvíti gott að vera með radarvara, gat keyrt eins og mófó án þess að vera tekin af löggunni muhaha… Sú ákvörðun að fara til klausturs var tekin í mjög miklum fljótheitum. Eins og mér einni er lagið enda lang skemmtilegastar svona óvæntar ferðir. Fríða kíkti á okkur Hörpu á laugardeginum og dró okkur út að borða og þá kom þessi snilldar hugmynd að fara í útileigu og við vorum komin út úr bænum um 6 leitið. Reyndar stutt útileiga þar sem erfinginn var ekki svo sáttur að sofa í tjaldi og heyra fuglasöng svo það var brunað til pabba gamla um nóttina til að fá gistingu. Fékk miklar skammir fyrir lýgi þar sem ég sagði við Fríðu og co að það væru bara ca 30 kílómetrar frá Vík á Klaustur og svo benti ég þeim á tjaldsvæði sem ég hélt að væri eina tjaldsvæðið á staðnum svo stakk ég bara af til að hitta pabba, slökkti á símanum mínum og aumingja Fríða og Danni leituðu af mér út um allt og héldu að ég hefði bara stungið af hehe ;) Þau ætla samt að leggja í það að fara með mér aftur í útileigu eða alla vegna er Fríða strax farin að plana aðra útileigu :)

Er ein að vinna í dag eða alla vegna í minni deild svo þessi dagur mun verða lengi að líða. Afrekaði það að sækja bílinn minn í viðgerð áðan og svo á að láta skoða kaggann á eftir, bið til guðs að hann komist í gegn enda búin að henda allt of miklum pening í bílinn í þessum mánuði. Og verð alveg brjál ef það þarf að fara að gera meir við hann argg… Bubba tónleikarnir í kvöld og ég get ekki beðið… Eins gott að Bubbi taki Afgan, Sumarið er tíminn og Fjöllin hafa vakað ;)  Fer með elskulegum bræðrum mínum. Bruna beint heim eftir vinnu að hafa sig til og drekka öl… diddirí ;) Skelli inn myndum í kvöld úr frægu útileigunni okkar um helgina og kannski frá tónleikunum í kvöld ef ég verð ekki ofurölvi ;)

Við mæðgur kíktum niðrá tjörn í gær ásamt "strák sem ég þekki" og já gáfum auðvitað öndunum brauð. Og þegar brauðið var búið tók Harpa sig til og sparkaði í saklausa gæs sem hélt að hún væri að fá brauð. Aumingja fuglinn hrökklaðist í burtu. Vá hvað þetta var samt fyndið ;) Þurfti alveg að passa mig að láta hana ekki sjá hvað mér þætti þetta fyndið… Hehehe.. Uppeldið alveg að gera sig á þessum bæ.

Ef einhverjum langar í páfagauka þá megið þið hafa samband er að gefast upp á þessum helv… fuglum. Þeir eru samt geðveikt æðislegir *hóst* *hóst* Er að fara með dísarfuglinn á eftir til Furðufugla og fylgifiska að láta klippa flugvængina þá getur hún ekki flogið þessi elska. Svo ætlar kallinn þarna kannski að temja hana fyrir mig svo kannski verður hún geðveikt blíð og góð. Spurning um að gefa erfingjanum bara dverghamstur svo miklu minni fyrirhöfn en að hafa tvo gargandi fugla.

Fyndnar þessar stjörnuspár… er svona hljómar mín fyrir daginn í dag…

Þú lifir hröðu og annasömu lífi en mátt ekki gleyma þér, þörfum þínum og tilfinningum. Hér kemur fram að bogmaður er ekki sáttur á einhvern máta því hann bæði vill og óttast náin kynni og óttast þau án efa vegna hættunnar á að afhjúpa sig og missa jafnvel stjórnina á eigin tilfinningum. Hugaðu vel að þessu ef þú ert fædd(ur) undir stjörnu bogmanns.
Shitturinn titturinn ;)

Það á að byrja að sýna O men í kvöld. Spurning um að kíkja á hana um helgina og skíta á sig af hræðslu :)

Ég er svo forvitin.. hver setti á b2.is inn myndina af bubba byggi gaurnum í jakkafötunum af myndasíðunni minni??

Permalink Rita ummæli