Laugardagur og minns að springa úr dugnaði :)

júlí 29, 2006 at 7:32 pm (Uncategorized)

Ég er búin að vera svo dugleg í dag að hálfa væri nóg… Við erfinginn vöknuðum reyndar ekkert allt of snemma en þar sem það er laugardagur þá er nú í lagi að sofa út. Byrjaði á að þrífa kofann hátt og lágt, þvo þvott annað sem tilheyrir því að eiga heimili ;) Svo fórum við Harpa út að labba og tókum langan labbitúr hérna um Kópavoginn og kíktum svo á róló.. rosa stuð :) Er svo að elda helgar steikina sem er að sjálfsögðu svínakjöt.. hvað annað.

Það er svo gott að vera komin heim og Harpa er alveg sammála mömmu sinni með það. Hún er búin að vera svo góð og aldrei þessu vant er hún bara inn í herberginu sínu að dunda enda var hún komin með nóg af þessu ferðalagi okkar og ekkert smá fegin að fá allt dótið sitt aftur… spurning um að vera duglegri að ferðast svo hún verði oftar svona góð :) Sakna sólarinnar í Danmörku bara pínulítið. Skrítið að koma í bæinn og beint í rigningu en svona er bara að búa í Rvk. Vona bara að þessir fáu dagar sem ég á eftir í sumarfríi verði góðir…

Ég var nú samt ekkert allt of sátt þegar ég kom heim vegna þess að það hefur einhver farið inn í íbúðina meðan ég var ekki heima. Geðveikt skrítið þar sem ekkert var tekið… bara búið að opna fataskápinn minn, búið að slökkva ljós og svo var tappinn í vaskinum fastur inn á baði og búið að loka hurðinni. En nú er búið að skipta um lásinn á hurðinni svo það ætti enginn að komast hérna inn. Óþægileg tilfinning sem ég er búin að vera með vegna þess að mig grunar konuna sem bjó hérna og hún býr ennþá í húsinu. Þannig nú er ég alveg búin að fá nóg á að eiga heima hér og er farin að leita mér af annari íbúð.

Ætla að byrja í átaki á morgun og skella mér í sporthúsið að sprikla.. Alveg komin með nóg að þessu sukki sem er búið að vera á mér í sumarfríinu og ætla að enda sumarfríið á því að koma mér að stað í ræktinni… Nú er bara að duga eða drepast… ætla að vera komin í super gott form fyrir 25 ára afmælið. Hommahöldunar skulu hverfa hehe ;)

Steikin kallar og best að fara að malla sósu :)

Permalink 11 Ummæli

Túristinn…

júlí 25, 2006 at 12:54 am (Uncategorized)

Við erum ennþá í Danmörku og það er búið að vera geggjað veður.. :) Erum búin að fara í tívolíið,dýragarðinn, siglingu, skoða fullt af flottum stöðum og auðvita versla… Og ég lofthrædda manneskjan fór í fallturninn, rússibanann og nánast öll tækin nema róluna sem ég man ekki hvað heitir en hún fer geggjað hátt og ég hefði pottþétt fengið hjartaáfall í því tæki svo ég sleppti því bara :) Ætlaði ekki að þora að fara í fallturninn en ætlaði ekki að sjá eftir því að hafa ekki farið svo kellan skellti sér. Fékk geðveikan hjartslátt þegar tækið var komið alla leið upp og skalf öll þegar ég var komin úr tækinu en þetta var nú samt þess virði ;) Rússibaninn var æði… Ég lénti við hliðin á einhverjum unglings strákum sem spjölluðu saman allan tímann svo ég reyndi að halda ró minni og öskraði eins lítið og ég gat :)

Í dag fórum við að skoða Dragor sem er lítið gamalt þorp rétt fyrir utan Kaupmannahöfn, Litlu Hafmeyjuna, Kastellet sem er elsta herstöð sem er í notkun í heiminum, ensku biskupakirkjuna í Churchillgarði og eina af höllum drottningarinnar sem heitir Amelienborg svo kíktum við á ströndina í Amager áður en við féngum okkur að borða. Svo er það bara Legoland á morgun og ég þarf víst að fara snemma að sofa því við ætlum að leggja að stað mjög snemma… Eða um sjö leitið.. og gangi mér vel að vakna :) Er nett sólbrunnin eftir daginn enda engin smá blíða hér í Danaveldi :)

Kíktum í dýragarðinn í gær og eyddum nánast öllum deginum þar enda margt að skoða og shit nú er ég hrædd um að húsdýragarðurinn heima verði ekki eins spennandi og hann hefur verið. Sáum alveg heilan heilling af dýrum sem við höfum ekki séð áður með berum augum t.d ísbjörn, gíraffa, ljón, tígrisdýr, sebrahest, mörgæsir o.fl. Svo kom þessi svakalega rigning á leiðinni heim þannig að við urðum alveg blaut í gegn. Og það rigndi ekki bara heldur komu eldingar og allur pakkinn :)

Fyrir þá sem ekki vita þá er ég örugglega pödduhræddasta manneskja í heimi og ég er alveg búin að skemmta fólki ágætlega sem hefur tekið eftir töktunum mínum þegar t.d geitungur nálgast ;) Og í gær kvöldi þegar ég var að laumupúkast út að reykja þá tók ég eftir að eitthvað hoppaði við lappirnar á mér og mér auðvita  dauðbrá og kipptist öll til…. ýmindaði mér auðvitað það versta og það fyrsta sem kom upp í huga minn var að þetta væri risakónguló tíhí…. djöfull getur maður verið klikkaður en jæja þá var þetta bara lítill sætur froskur að villast ;) Og mér langaði aðvitað að setja hann í e-ð og taka hann með heim en ferðafélaganum leist ekki eins vel á þá hugmynd mína svo það varð ekkert af því :( Djöfulsins…. Ef það kemur aftur svona mikil rigning þá skal ég ná froski..
Ég er búin að komast að því að pulsurnar í Danmörku eru svo miklu betri en heima….það er ekki þetta ógeðis fitubragð eins og er heima… Mjög sátt við það og er aldeilis búin að hakka þær í mig :)

Hef ekkert meira að segja í bili…allir farnir að sofa og ég ein á fótum sem kemur eflaust ekki mörgum á óvart sem þekkja mig. Ekkert smá skrítið að gemsinn manns skuli stein þegja… Þannig að ef þú lest bloggið mitt mamma þá þætti mér vænt um að þú mundir hringja hehehehe ;)

Svaní túristi

Permalink 1 ummæli

Sumarfrí í steikjandi hita……

júlí 20, 2006 at 10:12 pm (Uncategorized)

Ég er komin til Danmerkur og er að kafna úr hita. Sit hérna inni í chilli núna… Með bjór í annari og sígó í hinni… nei segi svona. Harpa var að sofna enda alveg dauðþreytt eftir daginn. Gerðum ekki mikið í dag enda léntum við svo seint eða um 6 leitið á dönskum tíma. En tókum okkur göngutúr um hverfið og fengum okkur kínverskan mat og röltum á Amager strönd. Og þar var fólk bara að synda í sjónum langt fram á kvöld…. bara kósý ;) Annars lítið að frétta, erfinginn bara mjög sáttur að vera í “útlöndum” og svo er lítil stelpa hérna á gistiheimilinu á svipuðum aldri og hún svo henni leiðist nú ekki :) Stefnan tekin á verslunarferð… tívolí, kíkja á Strikið og chill á ströndinni á morgun :)

Var á Egilsstöðum í viku og við Begga, Hanna, Siggi og Hilli fórum í útileigu í Atlavík sem var mjög gaman eða alla vegna skemmti ég mér vel… og þá sérstaklega þegar allir voru farnir að sofa hehe :) Hanna og Begga sváfu í þynnsta og minnsta tjaldi sem ég hef séð. Enda ætlar Hanna aldrei aftur að sofa í tjaldi. Svo kíkti Boggan á okkur á laugardagskvöldinu og Hanna yfirgaf okkur til að fara heim að elda gúllas handa kallinum ;) Shit hvað maður er orðinn gamall…. Vinkonur manns orðanar svo ráðsettar að þær fara spes ferð til að elda fyrir kallinn… Aldrei mundi ég nenna að keyra 50 kílómetra til að elda fyrir kallinn minn… Piff :) Minn kall skal sko fá að sjá um sig sjálfur þegar ég fer í útileigur með vinkonum mínum eða e-ð álíka dæmi. En nóg um gúllasið… Svo dróum við Begga Sigga og Hilla til Borgarfjarðar Eystri… til að sýna þeim höfuðstöfðar austurlands….. muhaha :) Ætluðum reyndar að sýna þeim fleiri staði en það gafst ekki tími til þess í þetta skipti :)

Er búin að skella inn myndum frá því í Atlavík og ef guð lofar þá skelli ég kannski nokkrum myndum inn frá Danmörku í kvöld eða á morgun…

Knús og kossar frá Danmörku :)

SvAnSí ÚtLeDiNgUr..

Permalink 3 Ummæli

Er á Eskifirði

júlí 12, 2006 at 4:37 pm (Uncategorized)

Jæja mín rúllaði bara á Eskifjörð að hitta Hönnu og við erum búnar að vera að tölvunördast meira og minna allan tímann… Skrítið þegar maður á loksins frí þá veit maður ekkert hvað maður á að gera. Harpa spurði mig þegar við vorum að keyra inn í bæinn hvort einhver hefði verið að prumpa? Hehe :) Það var einhver bræðslulykt sem lá yfir bænum og erfiginn ekki sáttur… öskraði aftur í ojjjj vond lykt. Þannig mér hefur tekist að ala upp alvöru borgarbarn því hún er líka búin að biðja um að fá kfc og subway og hmmm hvorugt er í boði á austurlandinu.

Fékk geðveikt menningar sjokk þegar ég keyrði í gegn um Reyðarfjörð… shit það er komið hringtorg og allt maður og ég sá álverið í fyrsta skipti og það er ekkert smá stórt.

Fólk er að beila á reunioninu sem var búið að plana fyrir löngu síðan. Sumir vilja ekki vera í tjaldi, aðrir veikir og sumir segjast þurfa að vinna (á miðjunni)… En við Begga ætlum sko að skemmta okkur og Hanna mun gista í tjaldi sama hvort henni líkar það eða ekki ;)  Spurning um að taka bara teip með sér og rifja upp gamlar minningar í leiðinni :) Langar þig ekki að láta teipa þig aftur Hanna??

 Jæja er farin að taka til…. allt í rúst eftir okkur hérna hjá Hönnu ops…

Og takið þátt í könnuninni minni…..

Svansí country girl  ;)

Hverjir eru að skoða síðuna mína??

Permalink 1 ummæli

Er að fara að rúlla í sveitina….

júlí 11, 2006 at 2:36 pm (Uncategorized)

Loksins allt tilbúið og ég er að leggja að stað…. Þarf reyndar að redda smá fyrir fóstra minn :( Og hnúsa kallinn og þá er ég tilbúin að leggja í hann ;) Ætla að fara norður leiðina og er að fara að keyra þetta ein svo það er eins gott að ég verði vel vakandi.. Veður spáin fyrir helgina lítur mjög vel út.. Eins gott að það verði gott veður annars er ég ekki í góðum málum… daddara.. Allir í Atlavík um næstu helgi því þar verður boss boss gengið hehe ;)

Sorry Hanna að ég sé ekki búin að henda þessum myndum af okkur síðan í “gamla daga” á netið, ég er búin að skanna slatta en hef bara ekki haft tíma til þess að setja þetta á netið.

Hvað er svo eigilega málið með ykkur kúkalabbar…. Það voru geðveikt margar heimsóknir á síðuna í gær en enginn kommentar eða kvittar í gestó :(

Gummi og Fannar það er bannað að halda partý meðan ég verð í burtu annars verður mér að mæta :)

Jæja ætla að hætta þessu mali og leggja að stað…

Sjáumst í Atlavík… Siggi og Hilli :)

Permalink Rita ummæli

Gekk alveg glimrandi vel ;)

júlí 6, 2006 at 7:46 pm (Uncategorized)

Fór í þessa aðgerð mína kl 12:30 í dag. Var semsagt að láta laga á mér nebbann þar sem ég hef einhvern tímann nefbrotnað þegar ég var lítil og var að láta laga skekkjuna. Var að farast úr stressi því ég hef aldrei verið svæfð áður. Var búin að lofa að hætta að reykja en neinei.. mín bara keðjureykti áður en labbað var inn á Domus. Það kom nú ekki að sök.. hver getur svosem hætt að reykja undir svona miklu stressi og álagi hmm ;) Það gleymdist að gefa mér kæruleysis töflu og það fattaðist ekki fyrr en það var byrjað að dæla svefnlyfinu í mig. Man bara að ég spurði svæfingarlækninn hvort hún væri byrjuð og þá lognaðist ég út af :) Þetta gekk vonum framar og ég trúði því ekki þegar ég vaknaði að þetta væri búið og spurði lækninn hvenær ég yrði eigilega svæfð hehe.. Er nú soldið bólgin núna… geðveikt fyndið því það er e-ð svo mikið bil á milli augnanna og svo er ég að fá mar við augun. En ég verð fljót að jafna mig… finn ekkert til eða alla vegna ekki ennþá :)

Anyways….. Fer beit austur til Egilsstaða í sólina þegar ég er búin að jafna mig. Sem verður líklegast á þriðjudaginn eða miðvikudag…. Þarf að hitta doksann á þriðjudaginn og aldrei að vita nema maður bruni strax austur eftir það… Get ekki beðið eftir því að komast til fallegasta staðsins á ÖLLU landinu!!!

Egilsstaðir í allri sinni dýrð :)

Atlavík þar sem stefnt er að því að fara í útileigu ;)

Permalink Rita ummæli

Alveg að fara í sumarfrí…. Jibbí :)

júlí 5, 2006 at 11:16 am (Uncategorized)

Jæja mætt í vinnu og þetta er síðasti vinnudagurinn minn í langan tíma… Mæti aftur strax eftir verslunarmannahelgina.. tóm hamingja ;) Er alveg komin með ógeð á vinnunni minni svo þetta verður kærkomin hvíld :) Var að koma frá tannsa og er eins og fílamaðurinn í framan. Svo ætla ég að láta pína mig ennþá meir á morgun því ég er að fara í “smá” aðgerð og er að skíta á mig af hræðslu núna, hef nefnilega aldrei verið svæfð áður. En mamma ætlar að fara með mér og halda í hendina á litlu stelpunni sinni ;)

Lét verða af því að fara í útileigu með Fríðu og co um síðustu helgi, þar sem ég flúði úr síðustu útileigu. Við fórum í  Laugarás sem er rétt hjá Flúðum. Og með í för voru að sjálfsögðu Fríða, Danni, Eva, Siggi, Harpa og minns svo kom e-ð hnakkalið frá Selfossi sem Danni þekkir.  Föstudagskvöldið var mjög fínt en ég verð að segja að laugardagskvöldið var ekkert spes… örugglega bara vegna þess að hnakkarnir voru ekki alveg að gera sig. En engu að síður mjög fín útileiga. Sýndi og sannaði hvað ég er góð í picturnary og babminton “hóst” :) Spurning um að vera búin að æfa sig fyrir næstu útileigu. Svo í bakaleiðinni kíktum við Siggi og Harpa á Gullfoss og Geysi.

Djöfull var ég reið í gær… Fór til félagsráðgjafa sem ég hefði betur sleppt. Hef aldrei leitað til féló áður en gerði það til að tékka hvort ég ætti rétt á íbúð hjá þeim svo ég geti einhvern tímann klárað að mennta mig. Er nefnileg að leigja svo dýrt og hef engan áhuga á að kaupa mér íbúð eins og staðan er í dag. En ég hefði alveg eins getað farið út og talað við steinana argg… Skil ekki hvernig það er endalaust hægt að hjálpa fólki sem vill ekki gera neitt í sýnum málum en svo er ekki hægt að hjálpa þeim sem vilja standa sig. Æ nóg um þetta helv…

Fullt af góðum hlutum til að gleðjast yfir :)

Ég á aðeins eftir að vinna í 5 tíma…

Tecno partý liðið sem býr við hliðina á mér er að flytja…..

Ég er alveg að fara til Egilsstaða ;)

Það eru 15 dagar í Danmerkurferðina….

Ætla að skella mér í tækniteiknun eftir áramót og klára ansk… stúdentinn í leiðinni ;)

 Við erum þrjú í deildinni í dag og það er nákvamlega ekkert að gera… Rakel ljósálfur er að lesa barnabækur. Spurning um að finna sér bók í hádeginu… svona til að drepa tímann ;)

En jæja kveð í bili og ætla að fara að “vinna”

  

Permalink 3 Ummæli