Blogg leti…
Nenni ekki neinu þessa dagana og held að ástæðan sé of lítill svefn. En nú ætla ég að snúa þessu vöku dæmi mínu við… Var svo þreytt eftir vinnu í dag að ég kíkti á mömmu til að geta lagt mig og þá held ég að ég sé komin á botninn… Hmm “ungt” fólk á ekki að þurfa að leggja sig. Annars er bara allt fínt að frétta af þessum bæ, hef ekki nennt að blogga og svo hef ég ekki haft tíma eða ekki gefið mér tíma í það þar sem ákveðinn aðili er að “stela” frá mér tíma.
Er farin að vinna aftur eftir 4 vikna frí og ég get ekki sagt að það sé neitt allt of gaman í vinnunni þessa dagana þar sem breytingar standa yfir og búðin orðin tóm en þar sem ég nenni ekki að fara að vinna í annari búð þá ætla ég að láta mig hafa þetta. Dagurinn í dag fór mestmegnis í e-ð vatnsmelónu djók… Þar sem ákveðnir aðilar voru að segja sögu úr einhverju partýi… Og þið strákar sem eruð á lausu þá var mér sagt að melóna væri bara alveg ágæt lausn en ekki hita hana í meir en 12 sek í örbylgjunni.. Og þar sem ég var með svefngalsa hló ég af þessari anskotans steypu í liðinu…
Um versló dró Siggi mig og Hörpu í rigningar útileigu, man ekki hvað þetta hét sem við fórum en þetta var rétt hjá Búðardal og ég hélt að það yrðu bara nokkrir ættingjar en nei þá var bara hálf ættin hans Sigga þarna… Fín útileiga fyrir utan hvað það ringdi mikið en við vöknuðum þó ekki í polli eins og sumir enda var Siggi með flottasta tjaldið á svæðinu “hóst”
Við Fríða vinkona fórum í Smáralindina um daginn til að kaupa föt á Fríðu eða það var tilgangur ferðarinnar en enduðum á að labba út með línuskauta svo minns á orðið línuskauta og þótt ég segi sjálf frá þá er ég alveg geggjað góð á þeim hehe
Ég datt þó ekki eins og sumir en hey æfingin skapar meistarann
Svo núna er bara að vera dugleg að æfa sig….
Helgin var ekkert smá róleg… Föstudagskvöldið fór bara í e-ð chill.. Pabbi og bræður mínir voru hjá mér e-ð fram eftir. Svo á laugardeginum skellti ég mér í Gay pride gönguna með Sigga og Hörpu og hitti Hildi frænku og nokkra geitunga í bænum. Djöfulsins anskotans ógeðis kvikindi
ARRRGGG Svo var það múttu matur, við Siggi kíktum á línuskauta og svo kítum við í bíó á Miami Vice og ég hélt að ég væri að fara á hasarmynd þar sem hún er auglýst þannig en guð minn góður ef þetta er hasarmynd þá er Titanic hasarmynd….við dottuðum yfir henni svo ef þið ætlið að fara að sjá hana ekki vera þá mjög þreytt
Er kannski að spá að færa bloggið mitt yfir á aðra síða en það kemur í ljós núna á næstu dögum ef ég verð dugleg
Svo er það stelpu djamm á lau… get ekki beðið þar sem ég er ekki að fara að vinna á sunnudegi eins og alltaf þegar það er pabbahelgi svo nú verður djammað af sér rassgatið
Þetta er orðin ansi löng færsla svo ég er að spá að fá mér núðlusúpu þar sem það var silungur í matinn hjá múttu ojjj ojjjj ojjjjjjjjj hehe
Og ekki nenni ég að elda fyrir mig eina. Og skella mér svo í sjóðandi bað og fara svo snemma í háttinn svona til tilbreytingar.
Bæ í bili…
Svansí (sem ætlar ekki að láta plata ofan í sig silungi… gefið mér frekar wiskas)
Gáfnapróf
UUUSSS þetta er rosaleg…… hvað er í gangi hér ????
Stutt próf.
Þetta er ekki grín, prófaðu bara. Og ekki svindla!
Þetta er „Gáfnapróf“ ættað af innra neti Daimler Chrysler í Berlín.
Teldu hversu mörg F eru í textanum hérna fyrir neðan:
FINISHED FILES ARE THE RE-
SULT OF YEARS OF SCIENTIF-
IC STUDY COMBINED WITH THE
EXPERIENCE OF YEARS
Búinn? Ekki lesa textann fyrir neðan fyrr en þú ert búinn að telja!
RANGT!!!!
Þau eru 6 – ég er ekki að grínast!
Ef þú trúir mér ekki, lestu textann aftur.
Lausnin er hér fyrir neðan, ef þú finnur þau ekki ennþá.
Lausnin:
Heilinn ræður ekki við orðið „OF“ – bilað ekki satt?
Þeir sem fundu 6 strax eru snillingar, 3 eru meðaltalið, 4 sjaldan.
Hvernig gekk þér?