Búin að vera alveg gjörsamlega LOST!!
Held að það sé alveg kominn tími á smá blogg…. Annars er nú ekkert svakalega mikið að frétta. Hef ekki nennt eða ekki haft tíma til að blogga þar sem ég datt inn í Lost seríu nr 1 og hætti ekki fyrr en ég var búin að klára hana. Ekkert smá spennandi þættir maður og langt síðan ég hef fest svona rosalega yfir tv-inu. Svo takk æðislega fyrir lánið Fríða mín og farðu svo að kaupa seríu nr 2 svo ég geti fengið hana lánaða
hehe.. Talvan mín er gjörsamlega að fríka út þessa dagana. Alveg stút full að vírusum að hálfa væri nóg. Svo það er að poppa upp í tíma og ótíma allskonar rugl eins og einhverjar helv…klámsíður… meet local woman tonight og fleira í þeim dúr. Gaman að sitja í sakleysi sínu eins og í gær þegar ég ætlaði að tékka á hvort ég hefði fengið póst frá kennaranum mínum og svo poppar upp svona sori
uss bara. Greinilegt að einhver hefur stolist til að skoða klám í minni tölvu…. Best að nefna engin nöfn en ein manneskja liggur sterklega undir grun muhahah. En Fannar bróðir var hérna hjá mér að reyna að laga hana svo þetta kemur vonandi til með að lagast
Var veik í gær eða fékk mígrenis kast og var alveg að drepast og lá í rúminu til að verða 5 um daginn… Dauði og djöfull og svo var ég asnaleg í höfðinu í allan dag því maður er svo lengi að jafna sig eftir svona. En er að fara í blóðprufu á morgun þar sem á að útiloka ýmislegt. Ég virðist nefnilega falla stundum svo rosalega í sykri sem mér finnst ekki eðlilegt og þá finn ég líka fyrir einhverjum svona höfuð þyngslum…. Ég er semsagt bara alveg stórgölluð
snökt… Svo er ég e-ð að spá í vinnumálum.. Spurning um að maður fari að kíkja í kring um sig.. Fyndið að fyrst var alveg brjálað að gera í búðinni og maður hafði ekki undan en svo í dag er bara ekki rassgat að gera. Ekkert nema óléttar konur og konur sem eru í fæðingarorlofi sem eru ráfandi þarna um búðina. En það eru mjög heitar umræður um búðina á barnalandi… Eða svo var mér sagt.. hef ekki nennt að kíkja á það. Endilega kíkið á síðuna www.egg.is Síðan er reyndar enn í vinnslu en það er mynd af minns og allt saman.. Ætlaði að setja inn myndir og fl í kvöld en það verður að bíða betri tíma… Þar sem ég var að losna við bræður mína og verð að kíkja smá í skólabækunar áður en ég fer að sofa. En afrekaði samt í gær að henda inn nokkrum myndum á síðuna hennar Hörpu svona fyrir þá sem eru alltaf að kvarta :Þ Sumir menn hafa áhyggjur af stærðinni af vininum og þá held ég að þig ættuð að kíkja á þetta. Soldið dónó en snilld á sinn hátt… kom mér alla vegna til að hlægja
Vinna og meiri vinna…
Er enn að vinna og klukkan bara um 2 leitið…. Búin að vera að síðan kl 9 í morgun. Og ég á eftir að vera hérna í nokkra tíma í viðbót díses
En get huggað mig við það að ég á eftir að fá feitt útborgað
Sem er náttúeulega bara tóm hamingja… Það verður opnunar partý á morgun og svo opnar búðin formlega á föstudag… Og það verða allir að mæta og sjá hvað þetta er klikkað flott hjá okkur
Varð að henda þessu inn….
Hvernig gera á konu hamingjusama :
Það er ekki erfitt, að gera konu hamingjusama, þú þarft bara að vera:
1. vinur
2. félagi
3. ástmaður
4. bróðir
5. faðir
6. húsbóndi
7. yfirmaður
8. rafvirki
9. trésmiður
10. pípari
11. handlaginn
12. skreytimeistari
13. stílisti
14. sérfræðingur í kynlífi
15. mannþekkjari
16. sálfræðingur
17. hagfræðingur
18. reiknimeistari
19. góður huggari
20. góður hlustandi
21. skipuleggjari
22. góður faðir
23. snyrtilegur
24. samúðarfullur
25. sportlegur
26. hlýr
27. skemmtilegur
28. aðlaðandi
29. snillingur
30. fyndinn
31. hugmyndaríkur
32. mjúkur
33. sterkur
34. skilningsgóður
35. þokkafullur
36. prúður
37. metnaðarfullur
38. hæfileikaríkur
39. þolgóður
40. skynsamur
41. trúr
42. ábyggilegur
43. ástríðufullur
..og gleymir aldrei að:
44. gefa henni gjafir reglulega
45. fara með henni að versla
46. vera heiðarlegur
47. vera örlátur
48. að stressa hanna ekki
49. horfa ekki á aðrar konurog um leið þá verðurðu líka að:50. veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig
51. gefa henni allan tíma sem hún þarf
52. gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer
Það er mjög áríðandi:
53. að gleyma aldrei:
54. afmælisdögum
55. brúðkaupsdögum
56. plönum sem hún hefur ákveðið
TIL AÐ GERA KARLMANN HAMINGJUSAMANN :
1. Gefa honum að borða
2. Sjá til að hann fái það reglulega
3. og þegja svo….
Magni datt út enda bjóst maður ekki við öðru en að Lukas hafi unnið… það finnst mér bara glatað
Jæja best að halda áfram að verðmerkja…
Ammali…ammali…
Hún Hanna Lára á afmæli í dag og skvísan er 25 og eins árs… Innilega til hamingju með daginn og góða skemmtun í kvöld

Kveðja Svansí eggjamær
Smá blogg….
Var að klára að vinna.. Og er að sækja Hörpu til múttu og áhvað að kíkja smá á netið. Er búin að vera að vinna soldið mikið upp á síðkastið vegna þess að það er stefnt á að opna búlluna í næstu viku. Mér skilst að einhverjir hafi fengið boðskort í dag í opnunina á búðinni og að í því sé meðal annars nafnið á búðinni og allt saman en þar sem ég er ekki 100 % viss þá þori ég ekki að tjá mig um það í bili. Get bara sagt ykkur að þetta verður klikkað töff búð
Ef allt gengur að óskum þá verð ég komin með net tengingu á morgun ef ekki þá veit ég ekki hvað ég geri… er búin að bíða síðan 22 ágúst eftir því að einhverjir gaurar lagi símalínuna inn í íbúð.. Svo ég þolinmóða manneskjan á eftir að snappa á morgun ef þessu verður ekki kippt í lag
Er búin að skrá mig í fjarnám í FG og byrja í því 16 sept. Hlakka nú alveg pínu til að fara að læra
Svo er Begga flutt í borg óttans og mér sem hlakkaði svo geðveikt til en hef lítið hitt hana því ég er alltaf að vinna fram eftir og svo er maður bundinn heima yfir erfingjanum á kvöldin…
Spennandi að sjá í kvöld hvort Magni komist áfram, mér fannst reyndar allir vera e-ð frekar lélegir í gær. En ef Magni dettur út þá er hann samt búinn að vinna þetta því hverjum hefði dottið í hug að hann kæmist svona langt
En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Farin heim að baða ungann minn….
ÁFRAM MAGNI!!!!