Smá blogg….

september 6, 2006 at 7:32 pm (Uncategorized)

Var að klára að vinna.. Og er að sækja Hörpu til múttu og áhvað að kíkja smá á netið. Er búin að vera að vinna soldið mikið upp á síðkastið vegna þess að það er stefnt á að opna búlluna í næstu viku. Mér skilst að einhverjir hafi fengið boðskort í dag í opnunina á búðinni og að í því sé meðal annars nafnið á búðinni og allt saman  en þar sem ég er ekki 100 % viss þá þori ég ekki að tjá mig um það í bili. Get bara sagt ykkur að þetta verður klikkað töff búð :) Ef allt gengur að óskum þá verð ég komin með net tengingu á morgun ef ekki þá veit ég ekki hvað ég geri… er búin að bíða síðan 22 ágúst eftir því að einhverjir gaurar lagi símalínuna inn í íbúð.. Svo ég þolinmóða manneskjan á eftir að snappa á morgun ef þessu verður ekki kippt í lag ;) Er búin að skrá mig í fjarnám í FG og byrja í því 16 sept. Hlakka nú alveg pínu til að fara að læra :) Svo er Begga flutt í borg óttans og mér sem hlakkaði svo geðveikt til en hef lítið hitt hana því ég er alltaf að vinna fram eftir og svo er maður bundinn heima yfir erfingjanum á kvöldin…

Spennandi að sjá í kvöld hvort Magni komist áfram, mér fannst reyndar allir vera e-ð frekar lélegir í gær. En ef Magni dettur út þá er hann samt búinn að vinna þetta því hverjum hefði dottið í hug að hann kæmist svona langt :) En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Farin heim að baða ungann minn….

ÁFRAM MAGNI!!!!

Permalink 4 Ummæli