Smá blogg….
Var að klára að vinna.. Og er að sækja Hörpu til múttu og áhvað að kíkja smá á netið. Er búin að vera að vinna soldið mikið upp á síðkastið vegna þess að það er stefnt á að opna búlluna í næstu viku. Mér skilst að einhverjir hafi fengið boðskort í dag í opnunina á búðinni og að í því sé meðal annars nafnið á búðinni og allt saman en þar sem ég er ekki 100 % viss þá þori ég ekki að tjá mig um það í bili. Get bara sagt ykkur að þetta verður klikkað töff búð
Ef allt gengur að óskum þá verð ég komin með net tengingu á morgun ef ekki þá veit ég ekki hvað ég geri… er búin að bíða síðan 22 ágúst eftir því að einhverjir gaurar lagi símalínuna inn í íbúð.. Svo ég þolinmóða manneskjan á eftir að snappa á morgun ef þessu verður ekki kippt í lag
Er búin að skrá mig í fjarnám í FG og byrja í því 16 sept. Hlakka nú alveg pínu til að fara að læra
Svo er Begga flutt í borg óttans og mér sem hlakkaði svo geðveikt til en hef lítið hitt hana því ég er alltaf að vinna fram eftir og svo er maður bundinn heima yfir erfingjanum á kvöldin…
Spennandi að sjá í kvöld hvort Magni komist áfram, mér fannst reyndar allir vera e-ð frekar lélegir í gær. En ef Magni dettur út þá er hann samt búinn að vinna þetta því hverjum hefði dottið í hug að hann kæmist svona langt
En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Farin heim að baða ungann minn….
ÁFRAM MAGNI!!!!
Boggan sagði,
september 7, 2006 kl. 1:05 pm
Jibbý nýtt blogg
leiðinlegt að hafa ekki hitt þig neitt þegar að ég var fyrir sunnann en við bætum úr því bara seinna
Jhanna sagði,
september 8, 2006 kl. 1:17 pm
nei sko mína.. nu er ég ánægð með þig,bara blogg

ertu orðin nettengd eða snappaðir þú hehe… helvítis símafólk haha!!
ég er voða heit fyrir þessari búð sem á að opna.. ég fékk ekkert ekki boðskort á opnunina
ég bara spyr, voru það bara einhverjir útvaldir sem fengu solles ?
Jhanna sagði,
september 8, 2006 kl. 1:18 pm
ps. takk fyrir kaffið sem þú varst svo góða að bjóða mér uppá hahaaha
svanfridur sagði,
september 8, 2006 kl. 2:42 pm
Já það eru víst bara útvaldir sem fá að koma á opnunina í kokteilboð
Ég gæti alveg boðið þér en þú verður þá að koma til Rvk.. Símalínan er komin í lag en nú er það tengingin sem er að bogga mig
Verður vonandi komið í lag í kvöld. Kaffi segiru hehe