Búin að vera alveg gjörsamlega LOST!!

september 26, 2006 at 10:05 pm (Uncategorized)

Held að það sé alveg kominn tími á smá blogg…. Annars er nú ekkert svakalega mikið að frétta. Hef ekki nennt eða ekki haft tíma til að blogga þar sem ég datt inn í Lost seríu nr 1 og hætti ekki fyrr en ég var búin að klára hana. Ekkert smá spennandi þættir maður og langt síðan ég hef fest svona rosalega yfir tv-inu. Svo takk æðislega fyrir lánið Fríða mín og farðu svo að kaupa seríu nr 2 svo ég geti fengið hana lánaða ;) hehe.. Talvan mín er gjörsamlega að fríka út þessa dagana. Alveg stút full að vírusum að hálfa væri nóg. Svo það er að poppa upp í tíma og ótíma allskonar rugl eins og einhverjar helv…klámsíður… meet local woman tonight og fleira í þeim dúr. Gaman að sitja í sakleysi sínu eins og í gær þegar ég ætlaði að tékka á hvort ég hefði fengið póst frá kennaranum mínum og svo poppar upp svona sori ;) uss bara. Greinilegt að einhver hefur stolist til að skoða klám í minni tölvu…. Best að nefna engin nöfn en ein manneskja liggur sterklega undir grun muhahah. En Fannar bróðir var hérna hjá mér að reyna að laga hana svo þetta kemur vonandi til með að lagast :) Var veik í gær eða fékk mígrenis kast og var alveg að drepast og lá í rúminu til að verða 5 um daginn… Dauði og djöfull og svo var ég asnaleg í höfðinu í allan dag því maður er svo lengi að jafna sig eftir svona. En er að fara í blóðprufu á morgun þar sem á að útiloka ýmislegt. Ég virðist nefnilega falla stundum svo rosalega í sykri sem mér finnst ekki eðlilegt og þá finn ég líka fyrir einhverjum svona höfuð þyngslum…. Ég er semsagt bara alveg stórgölluð :( snökt… Svo er ég e-ð að spá í vinnumálum.. Spurning um að maður fari að kíkja í kring um sig.. Fyndið að fyrst var alveg brjálað að gera í búðinni og maður hafði ekki undan en svo í dag er bara ekki rassgat að gera. Ekkert nema óléttar konur og konur sem eru í fæðingarorlofi sem eru ráfandi þarna um búðina. En það eru mjög heitar umræður um búðina á barnalandi… Eða svo var mér sagt.. hef ekki nennt að kíkja á það. Endilega kíkið á síðuna www.egg.is Síðan er reyndar enn í vinnslu en það er mynd af minns og allt saman.. Ætlaði að setja inn myndir og fl í kvöld en það verður að bíða betri tíma… Þar sem ég var að losna við bræður mína og verð að kíkja smá í skólabækunar áður en ég fer að sofa. En afrekaði samt í gær að henda inn nokkrum myndum á síðuna hennar Hörpu svona fyrir þá sem eru alltaf að kvarta :Þ Sumir menn hafa áhyggjur af stærðinni af vininum og þá held ég að þig ættuð að kíkja á þetta. Soldið dónó en snilld á sinn hátt… kom mér alla vegna til að hlægja ;)

Klikkið hér

7 Ummæli

  1. Jhanna sagði,

    Hahahaha litla tippið maður á þessum fyrsta hahah hann var með stærri brjóst en hann var með tippi, ég nennti nu ekki að horfa á þessi tippi lengur…
    meet local woman tonigh haha nuna veit eg afhverju þu ert alltaf busy á msn ;)

  2. svanfridur sagði,

    Hey þetta var nú óþarfi hehe…. Við skulum nú alveg hafa það á hreinu að ég er ekki busy á msn af því að ég er að skoða klám.. og ef ég væri af því þá væri ég að skoða einhverja hot kalla ekki e-ð kellingar dæmi ;) Og einn gaurinn þarna í þessu tippadæmi er nú bara ekki með neitt sko… grey maðurinn hehe ;)

  3. Hansa pansa sagði,

    ja er þetta bara orðin kellu búð common heheh en farðu að kikja í heimsokn stelpa er að fa pall i garðinn og flottheit party party ahhahah nefnilega garðparty :) smellum i okkur beer bráðum.Hefði viljað sja þig á broadway á laugardag jibby ég fekk miða ahahhaha er i skyjunum.:) jæja cheers babe

  4. Boggan sagði,

    Múhahahahah bara hrein snilld :)

  5. Hansa pansa sagði,

    oh ég missi alveg af typpabrandaranum það er síja á tölvunni svo ég se ekkert svona bömmer ;(

  6. Birna Sif sagði,

    hæhæ.. bara kvitta fyrir mig skvís… en hvað er með þetta egg dæmi… ???? alveg nýtt dæmi eða??

  7. svanfridur sagði,

    Hæ Bidda mín.. Gaman að sjá þig kommenta ;) Þetta egg dæmi er alveg ný búð sem var verið að opna. Sem er með allt fyrir heimilið… innréttingar, gólfefni, hreinlætistæki, ljós, búsáhöld, gjafavöru, málingu og margt fleira. Þú verður að kíkja næst þegar þú kemur suður á mig í eggið :) Klikkað flott búð sem allar kellur missa sig í með kortið.. hehe :)

Rita ummæli