Illa farin…
Hef tekið þá ákvörðun að hætta með þessa síðu…. en ekki fara að gráta strax því ég er komin með aðra síðu
Endilega kíkið á hana, hún er reyndar enn í vinnslu svo þið verðið að sýna þolinmæði í smá tíma…
Omg….. hot hot hot ;)
Smá svona handa okkur stelpunum til að slefa yfir… það er nú einu sinni að koma föstudagur og e-ð þarf ég að horfa á þegar ég þarf að halda mér vakandi yfir grút leiðinlegum skólabókum
Lífið gengur sinn vanagang hér í Kópavogi. Ég er reyndar strax komin með prófkvíða og skólinn nýbyrjaður. Er semsagt að fara í próf 22 okt í svo helv.. leiðinlegum kvæðum í íslensku að ég er alveg að fara að æla. Og þetta próf er hluti af lokaeinkun eða þar að segja þá verður ekki prófað úr þessu í lokaprófi svo ég varð að standa mig… Og ég á svo bágt núna því ég nenni ekki að vera að læra “snökt”
Ég held að mér sé að takast að losa mig við fuglana mína… alla vegna er fólk að sína mikinn áhuga fyrir henni Klóu… Síðasti séns fólk ef ykkur langar til að eignast hana
hehe.. Guð hvað mig hlakkar til þegar ég verð laus við þá. Þá get ég kannski sleppt því að ryksuga á hverjum degi.
Svo er helgin alveg að koma vííí…. og ég, Harpa, Siggi, Fannar og Gummi ætlum að skella okkur á Klaustur í tvær skírnaveislur og slappa af í sveitasælunni. Ég var reyndar kannski að spá að kíkja í smá veiði með Sigga
Flott maður… góð afsökun fyrir því að leggja sig þegar maður liggur ofan í skurði til að bíða eftir einhverjum fugla druslum.´
Best að fara að læra svo mér verði e-ð úr verki þetta kvöldið. Eigið góða helgi og stelpur njótið myndanna
Það er kominn föstudagur….
Drottinn minn djöfull hvað ég er ánægð að það sé kominn föstudagur
Er ein í vinnunni og það er voða rólegt e-ð. Ég er í algjöru föstudags skapi. Við hérna í vinnunni erum búin að vera með alls konar eggja brandara síðan við mættum… Svona vinnu einkahúmor
Það er árshátíð núna 21 okt og við ætlum að vera búin að æfa eggja sönginn vel fyrir hana svo er mikið búið að hlægja af því þegar það verður útsala í Egginu… þá verður sko egglos hehe
Jebb svona eru nú dagarnir í Egginu. Ég þarf nú e-ð að fara að kíkja á föt fyrir þessa blessuðu árshátíð… Endalaust erfitt að ákveða í hverju maður ætlar að fara í og á þannig stundu vildi ég að ég væri karlmaður. Það er svo miklu auðveldara :) Skella sér í sturtu, setja gel í hárið og fara í jakkaföt eða buxur og skyrtu og málið er dautt.. Demit… En maður verður bara að bíta í það súra epli að svona er lífið bara ef maður er kona…
Eitt sem pirrar mig alveg ótrúlega mikið… það er þegar fólk er að versla ljós að það kvartar endalaust hvað öll ljósin séu heit.. Hvað er að… argggggg… öll ljós hitna nema ljós með sparperum vegna þess að sparperur hitna ekki. Semsagt nánast allt sem tengist rafmagni hitnar heimska fólkið ykkar
Snapp snapp…
En helgin nálgast óðum og það er mömmuhelgi hjá mér svo ég verð örugglega út á róló að moka sand alla helgina
Nei segi svona en ætla að gera e-ð uppbyggjandi með Hörpu. Er meira að segja að spá að kíkja með hana í sunnudags skólann
Halilúja…..
Og hvað er svo málið með þessa lífeyrissjóðskalla þeir eru verri en Votta Jehóvar. Hringjandi í mann í tíma og ótíma
Allir bjóða betur en hinn og ég er alveg farin að snúast í hringi með þetta allt saman. Eruð þið í auka líffeyris sparnaði og hvar þá ef ég má spurja?
Svo mættu allir laumugestir fara að kvitta í gestó
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra en einn brandari að lokum sem kemur ykkur vonandi til að brosa smá..
Góða helgi
Mikill misskilningur!!!
Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er kominn einn mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk, heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um fyrr en hann fengi niðurstöðu úr rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þessu þangað til.
Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra sagði hann; “Þú ert kominn mánuð fram yfir”. “Hvernig í ósköpunum veist þú það?” spurði unga frúin. “Nú það er allt svona skráð kyrfilega í
tölvukerfi Orkuveitunnar” var svarið. “Heyrðu þetta sætti ég mig sko ekki við og ég ætla að tala við manninn minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við ykkur á morgun” sagði unga frúin og skellti hurðinni.
Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund Alfreðs Þorsteinssonar morguninn eftir. “Heyrðu Alfreð þetta er nú algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það í skrám ykkar að við séum komin mánuð fram yfir, hvern andskotann kemur ykkur það við?”.
“Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum við þetta úr skránni okkar.”svaraði Alfreð. “Borga ykkur, ertu ekki í lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?” “Nú þá klippum við bara á og tökum þig úr sambandi.” “Og hvað á konan mín þá að gera?” “Nú hún verður þá bara að nota kerti.” Svaraði Alfreð.
Mánudagur….
Jæja bara farin að blogga oftar… Þetta er allt að koma held ég. Var í vaktafríi í dag þar sem ég var að vinna bæði lau og sun. Mjög gott að vera ein heima og chilla. Ætlaði reyndar að taka daginn óvenju snemma en sökum léti/þreytu þá svaf ég til kl 10 og fór þá beint í ræktina. Ógeðslega dugleg maður
Hamaðist þar í góðan klukkutíma og fór þá heim.. Geggjuð tilfinning að vera farin að hreyfa sig aftur. Ætlaði að fara á búðarflakk með Beggu en þar sem það er nú ekki alveg það skemmtilegasta sem ég geri þá áhvað ég frekar að læra… Ég veit ég er skrítin
Svo var bara brunað að sækja Hörpu og heim að elda og allur sá pakki… Veit varla lengur hvað ég á af mér að gera á kvöldin þar sem Harpa er farin að sofa núna á milli 7-8 sem hún var nú ekki vön að gera. En eftir að hún byrjaði á nýja leikskólanum þá er hún alltaf alveg búin á því á kvöldin. En ég dey nú ekki ráðalaus svo ég fór að setja upp ljós inn í herbergi… þetta er svona kubbur og ljósið sem kemur af honum er klikkað cool… Svo nú verður geggjað rómó í svefnherberginu í dimmunni og kuldanum í vetur.

Svona lítur arangur erfiðisins út
Svo styttist óðum í að maður fari að skreyta fyrir jólin og þá verður nú gaman
Allt í jólaskrauti og séríum. En ég verð nú að bíða ennþá í smá tíma…
Helgin var alveg öfga róleg.. Kom heim eftir vinnu á föstudeginum og ætlaði að vera geggjað dugleg að læra en svo um 7 leitið þá var ég e-ð svo sifjuð að ég áhvað að leggja mig í smá og vaknaði takk fyrir kl 3 um nóttina og hélt auðvitað áfram að sofa og svaf til 10 um morguninn og þetta hefur nú bara ekki komið fyrir í langan tíma en vá hvað það var gott að sofa svona mikið. Svo á lau þá fórum við Siggi, Hildur (frænka) og Hilli í bíó að sjá Talladega Nights, sem var alveg ágæt svona eitt og eitt atriði sem maður gat hlegið af og svo var farið á Salt og chillað og fengið sér bjór. Á sunnudagskvöldinu fórum við Siggi fyrst í heimsókn til Beggu og svo í heimsókn til Dóru og Sigga… Sýna Dóru Sigga minn sem hún var búin að bíða eftir í smá tíma eins og svo margir aðrir. Þið verðið bara að fyrirgefa því hann Siggi þjáist af félagsfælni muhahaha
En mér tókst samt að draga hann með
En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra fyrst ég er ekki lengur ein heima… Svo er ég búin að lofa sjálfri mér því að fara fyrr að sofa á kvöldin og vakna kl 6:30 bruna með Hörpu í leikskólann og mæta eitur hress í ræktina áður en ég fer að vinna… Svo góða nótt allir saman…

