Mánudagur….

október 2, 2006 at 11:04 pm (Uncategorized)

Jæja bara farin að blogga oftar… Þetta er allt að koma held ég. Var í vaktafríi í dag þar sem ég var að vinna bæði lau og sun. Mjög gott að vera ein heima og chilla. Ætlaði reyndar að taka daginn óvenju snemma en sökum léti/þreytu þá svaf ég til kl 10 og fór þá beint í ræktina. Ógeðslega dugleg maður ;) Hamaðist þar í góðan klukkutíma og fór þá heim..  Geggjuð tilfinning að vera farin að hreyfa sig aftur.  Ætlaði að fara á búðarflakk með Beggu en þar sem það er nú ekki alveg það skemmtilegasta sem ég geri þá áhvað ég frekar að læra… Ég veit ég er skrítin :)  Svo var bara brunað að sækja Hörpu og heim að elda og allur sá pakki… Veit varla lengur hvað ég á af mér að gera á kvöldin þar sem Harpa er farin að sofa núna á milli 7-8 sem hún var nú ekki vön að gera. En eftir að hún byrjaði á nýja leikskólanum þá er hún alltaf alveg búin á því á kvöldin. En ég dey nú ekki ráðalaus svo ég fór að setja upp ljós inn í herbergi… þetta er svona kubbur og ljósið sem kemur af honum er klikkað cool… Svo nú verður geggjað rómó í svefnherberginu í dimmunni og kuldanum í vetur.  

ljos.jpg
Svona lítur arangur erfiðisins út ;)

Svo styttist óðum í að maður fari að skreyta fyrir jólin og þá verður nú gaman :) Allt í jólaskrauti og séríum. En ég verð nú að bíða ennþá í smá tíma…

Helgin var alveg öfga róleg.. Kom heim eftir vinnu á föstudeginum og ætlaði að vera geggjað dugleg að læra en svo um 7 leitið þá var ég e-ð svo sifjuð að ég áhvað að leggja mig í smá og vaknaði takk fyrir kl 3 um nóttina og hélt auðvitað áfram að sofa og svaf til 10 um morguninn og þetta hefur nú bara ekki komið fyrir í langan tíma en vá hvað það var gott að sofa svona mikið. Svo á lau þá fórum við Siggi, Hildur (frænka) og Hilli í bíó að sjá Talladega Nights, sem var alveg ágæt svona eitt og eitt atriði sem maður gat hlegið af og svo var farið á Salt og chillað og fengið sér bjór. Á sunnudagskvöldinu fórum við Siggi fyrst í heimsókn til Beggu og  svo í heimsókn til Dóru og Sigga… Sýna Dóru Sigga minn sem hún var búin að bíða eftir í smá tíma eins og svo margir aðrir. Þið verðið bara að fyrirgefa því hann Siggi þjáist af félagsfælni muhahaha ;) En mér tókst samt að draga hann með :)

En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra fyrst ég er ekki lengur ein heima… Svo er ég búin að lofa sjálfri mér því að fara fyrr að sofa á kvöldin og vakna kl 6:30 bruna með Hörpu í leikskólann og mæta eitur hress í ræktina áður en ég fer að vinna… Svo góða nótt allir saman…

Permalink 5 Ummæli