Mánudagur….
Jæja bara farin að blogga oftar… Þetta er allt að koma held ég. Var í vaktafríi í dag þar sem ég var að vinna bæði lau og sun. Mjög gott að vera ein heima og chilla. Ætlaði reyndar að taka daginn óvenju snemma en sökum léti/þreytu þá svaf ég til kl 10 og fór þá beint í ræktina. Ógeðslega dugleg maður
Hamaðist þar í góðan klukkutíma og fór þá heim.. Geggjuð tilfinning að vera farin að hreyfa sig aftur. Ætlaði að fara á búðarflakk með Beggu en þar sem það er nú ekki alveg það skemmtilegasta sem ég geri þá áhvað ég frekar að læra… Ég veit ég er skrítin
Svo var bara brunað að sækja Hörpu og heim að elda og allur sá pakki… Veit varla lengur hvað ég á af mér að gera á kvöldin þar sem Harpa er farin að sofa núna á milli 7-8 sem hún var nú ekki vön að gera. En eftir að hún byrjaði á nýja leikskólanum þá er hún alltaf alveg búin á því á kvöldin. En ég dey nú ekki ráðalaus svo ég fór að setja upp ljós inn í herbergi… þetta er svona kubbur og ljósið sem kemur af honum er klikkað cool… Svo nú verður geggjað rómó í svefnherberginu í dimmunni og kuldanum í vetur.

Svona lítur arangur erfiðisins út
Svo styttist óðum í að maður fari að skreyta fyrir jólin og þá verður nú gaman
Allt í jólaskrauti og séríum. En ég verð nú að bíða ennþá í smá tíma…
Helgin var alveg öfga róleg.. Kom heim eftir vinnu á föstudeginum og ætlaði að vera geggjað dugleg að læra en svo um 7 leitið þá var ég e-ð svo sifjuð að ég áhvað að leggja mig í smá og vaknaði takk fyrir kl 3 um nóttina og hélt auðvitað áfram að sofa og svaf til 10 um morguninn og þetta hefur nú bara ekki komið fyrir í langan tíma en vá hvað það var gott að sofa svona mikið. Svo á lau þá fórum við Siggi, Hildur (frænka) og Hilli í bíó að sjá Talladega Nights, sem var alveg ágæt svona eitt og eitt atriði sem maður gat hlegið af og svo var farið á Salt og chillað og fengið sér bjór. Á sunnudagskvöldinu fórum við Siggi fyrst í heimsókn til Beggu og svo í heimsókn til Dóru og Sigga… Sýna Dóru Sigga minn sem hún var búin að bíða eftir í smá tíma eins og svo margir aðrir. Þið verðið bara að fyrirgefa því hann Siggi þjáist af félagsfælni muhahaha
En mér tókst samt að draga hann með
En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra fyrst ég er ekki lengur ein heima… Svo er ég búin að lofa sjálfri mér því að fara fyrr að sofa á kvöldin og vakna kl 6:30 bruna með Hörpu í leikskólann og mæta eitur hress í ræktina áður en ég fer að vinna… Svo góða nótt allir saman…
Jhanna sagði,
október 3, 2006 kl. 6:47 pm
Jáhá!!! þú ert STÓR furðulegt eintak af kvennmanni sko… Leiðilegt að versla come on !!!!
Siggi Grétar sagði,
október 3, 2006 kl. 8:25 pm
“félagsfælni” uss uss
ég veit nú ekki betur en ég hafi farið alla leið á egilstaði til að hitta vini þína!!! og við skulum ekki gleyma heimsókninni til ömmu þinnar
lol
Annars er mér alveg sama hvert þú dregur mig, ég held að ég verði ekki bitinn svo fast
svanfridur sagði,
október 3, 2006 kl. 8:44 pm
Bíddu bara eftir heimsókn nr 2 til ömmu…. Þá verður sko spurningakeppni og þú knúsaður og kyssstur bak og fyrir eins og allir hinir ættingjarnir
Sé bara fyrir mér þig og Bjössa frænda í faðmlögum…. hehehe….
Jhanna sagði,
október 3, 2006 kl. 9:45 pm
Hahaha þið eruð svo sæt
Boggan sagði,
október 4, 2006 kl. 11:15 am
Múhahaha þið eruð svo miklir snillingar
algjörar rúsinur