Það er kominn föstudagur….
Drottinn minn djöfull hvað ég er ánægð að það sé kominn föstudagur
Er ein í vinnunni og það er voða rólegt e-ð. Ég er í algjöru föstudags skapi. Við hérna í vinnunni erum búin að vera með alls konar eggja brandara síðan við mættum… Svona vinnu einkahúmor
Það er árshátíð núna 21 okt og við ætlum að vera búin að æfa eggja sönginn vel fyrir hana svo er mikið búið að hlægja af því þegar það verður útsala í Egginu… þá verður sko egglos hehe
Jebb svona eru nú dagarnir í Egginu. Ég þarf nú e-ð að fara að kíkja á föt fyrir þessa blessuðu árshátíð… Endalaust erfitt að ákveða í hverju maður ætlar að fara í og á þannig stundu vildi ég að ég væri karlmaður. Það er svo miklu auðveldara :) Skella sér í sturtu, setja gel í hárið og fara í jakkaföt eða buxur og skyrtu og málið er dautt.. Demit… En maður verður bara að bíta í það súra epli að svona er lífið bara ef maður er kona…
Eitt sem pirrar mig alveg ótrúlega mikið… það er þegar fólk er að versla ljós að það kvartar endalaust hvað öll ljósin séu heit.. Hvað er að… argggggg… öll ljós hitna nema ljós með sparperum vegna þess að sparperur hitna ekki. Semsagt nánast allt sem tengist rafmagni hitnar heimska fólkið ykkar
Snapp snapp…
En helgin nálgast óðum og það er mömmuhelgi hjá mér svo ég verð örugglega út á róló að moka sand alla helgina
Nei segi svona en ætla að gera e-ð uppbyggjandi með Hörpu. Er meira að segja að spá að kíkja með hana í sunnudags skólann
Halilúja…..
Og hvað er svo málið með þessa lífeyrissjóðskalla þeir eru verri en Votta Jehóvar. Hringjandi í mann í tíma og ótíma
Allir bjóða betur en hinn og ég er alveg farin að snúast í hringi með þetta allt saman. Eruð þið í auka líffeyris sparnaði og hvar þá ef ég má spurja?
Svo mættu allir laumugestir fara að kvitta í gestó
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra en einn brandari að lokum sem kemur ykkur vonandi til að brosa smá..
Góða helgi
Mikill misskilningur!!!
Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er kominn einn mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk, heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um fyrr en hann fengi niðurstöðu úr rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þessu þangað til.
Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra sagði hann; “Þú ert kominn mánuð fram yfir”. “Hvernig í ósköpunum veist þú það?” spurði unga frúin. “Nú það er allt svona skráð kyrfilega í
tölvukerfi Orkuveitunnar” var svarið. “Heyrðu þetta sætti ég mig sko ekki við og ég ætla að tala við manninn minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við ykkur á morgun” sagði unga frúin og skellti hurðinni.
Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund Alfreðs Þorsteinssonar morguninn eftir. “Heyrðu Alfreð þetta er nú algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það í skrám ykkar að við séum komin mánuð fram yfir, hvern andskotann kemur ykkur það við?”.
“Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum við þetta úr skránni okkar.”svaraði Alfreð. “Borga ykkur, ertu ekki í lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?” “Nú þá klippum við bara á og tökum þig úr sambandi.” “Og hvað á konan mín þá að gera?” “Nú hún verður þá bara að nota kerti.” Svaraði Alfreð.