Laugardagur og minns að springa úr dugnaði :)
Ég er búin að vera svo dugleg í dag að hálfa væri nóg… Við erfinginn vöknuðum reyndar ekkert allt of snemma en þar sem það er laugardagur þá er nú í lagi að sofa út. Byrjaði á að þrífa kofann hátt og lágt, þvo þvott annað sem tilheyrir því að eiga heimili
Svo fórum við Harpa út að labba og tókum langan labbitúr hérna um Kópavoginn og kíktum svo á róló.. rosa stuð
Er svo að elda helgar steikina sem er að sjálfsögðu svínakjöt.. hvað annað.
Það er svo gott að vera komin heim og Harpa er alveg sammála mömmu sinni með það. Hún er búin að vera svo góð og aldrei þessu vant er hún bara inn í herberginu sínu að dunda enda var hún komin með nóg af þessu ferðalagi okkar og ekkert smá fegin að fá allt dótið sitt aftur… spurning um að vera duglegri að ferðast svo hún verði oftar svona góð
Sakna sólarinnar í Danmörku bara pínulítið. Skrítið að koma í bæinn og beint í rigningu en svona er bara að búa í Rvk. Vona bara að þessir fáu dagar sem ég á eftir í sumarfríi verði góðir…
Ég var nú samt ekkert allt of sátt þegar ég kom heim vegna þess að það hefur einhver farið inn í íbúðina meðan ég var ekki heima. Geðveikt skrítið þar sem ekkert var tekið… bara búið að opna fataskápinn minn, búið að slökkva ljós og svo var tappinn í vaskinum fastur inn á baði og búið að loka hurðinni. En nú er búið að skipta um lásinn á hurðinni svo það ætti enginn að komast hérna inn. Óþægileg tilfinning sem ég er búin að vera með vegna þess að mig grunar konuna sem bjó hérna og hún býr ennþá í húsinu. Þannig nú er ég alveg búin að fá nóg á að eiga heima hér og er farin að leita mér af annari íbúð.
Ætla að byrja í átaki á morgun og skella mér í sporthúsið að sprikla.. Alveg komin með nóg að þessu sukki sem er búið að vera á mér í sumarfríinu og ætla að enda sumarfríið á því að koma mér að stað í ræktinni… Nú er bara að duga eða drepast… ætla að vera komin í super gott form fyrir 25 ára afmælið. Hommahöldunar skulu hverfa hehe
Steikin kallar og best að fara að malla sósu
Túristinn…
Við erum ennþá í Danmörku og það er búið að vera geggjað veður..
Erum búin að fara í tívolíið,dýragarðinn, siglingu, skoða fullt af flottum stöðum og auðvita versla… Og ég lofthrædda manneskjan fór í fallturninn, rússibanann og nánast öll tækin nema róluna sem ég man ekki hvað heitir en hún fer geggjað hátt og ég hefði pottþétt fengið hjartaáfall í því tæki svo ég sleppti því bara
Ætlaði ekki að þora að fara í fallturninn en ætlaði ekki að sjá eftir því að hafa ekki farið svo kellan skellti sér. Fékk geðveikan hjartslátt þegar tækið var komið alla leið upp og skalf öll þegar ég var komin úr tækinu en þetta var nú samt þess virði
Rússibaninn var æði… Ég lénti við hliðin á einhverjum unglings strákum sem spjölluðu saman allan tímann svo ég reyndi að halda ró minni og öskraði eins lítið og ég gat
Í dag fórum við að skoða Dragor sem er lítið gamalt þorp rétt fyrir utan Kaupmannahöfn, Litlu Hafmeyjuna, Kastellet sem er elsta herstöð sem er í notkun í heiminum, ensku biskupakirkjuna í Churchillgarði og eina af höllum drottningarinnar sem heitir Amelienborg svo kíktum við á ströndina í Amager áður en við féngum okkur að borða. Svo er það bara Legoland á morgun og ég þarf víst að fara snemma að sofa því við ætlum að leggja að stað mjög snemma… Eða um sjö leitið.. og gangi mér vel að vakna
Er nett sólbrunnin eftir daginn enda engin smá blíða hér í Danaveldi
Kíktum í dýragarðinn í gær og eyddum nánast öllum deginum þar enda margt að skoða og shit nú er ég hrædd um að húsdýragarðurinn heima verði ekki eins spennandi og hann hefur verið. Sáum alveg heilan heilling af dýrum sem við höfum ekki séð áður með berum augum t.d ísbjörn, gíraffa, ljón, tígrisdýr, sebrahest, mörgæsir o.fl. Svo kom þessi svakalega rigning á leiðinni heim þannig að við urðum alveg blaut í gegn. Og það rigndi ekki bara heldur komu eldingar og allur pakkinn
Fyrir þá sem ekki vita þá er ég örugglega pödduhræddasta manneskja í heimi og ég er alveg búin að skemmta fólki ágætlega sem hefur tekið eftir töktunum mínum þegar t.d geitungur nálgast
Og í gær kvöldi þegar ég var að laumupúkast út að reykja þá tók ég eftir að eitthvað hoppaði við lappirnar á mér og mér auðvita dauðbrá og kipptist öll til…. ýmindaði mér auðvitað það versta og það fyrsta sem kom upp í huga minn var að þetta væri risakónguló tíhí…. djöfull getur maður verið klikkaður en jæja þá var þetta bara lítill sætur froskur að villast
Og mér langaði aðvitað að setja hann í e-ð og taka hann með heim en ferðafélaganum leist ekki eins vel á þá hugmynd mína svo það varð ekkert af því
Djöfulsins…. Ef það kemur aftur svona mikil rigning þá skal ég ná froski..
Ég er búin að komast að því að pulsurnar í Danmörku eru svo miklu betri en heima….það er ekki þetta ógeðis fitubragð eins og er heima… Mjög sátt við það og er aldeilis búin að hakka þær í mig
Hef ekkert meira að segja í bili…allir farnir að sofa og ég ein á fótum sem kemur eflaust ekki mörgum á óvart sem þekkja mig. Ekkert smá skrítið að gemsinn manns skuli stein þegja… Þannig að ef þú lest bloggið mitt mamma þá þætti mér vænt um að þú mundir hringja hehehehe
Svaní túristi
Sumarfrí í steikjandi hita……
Ég er komin til Danmerkur og er að kafna úr hita. Sit hérna inni í chilli núna… Með bjór í annari og sígó í hinni… nei segi svona. Harpa var að sofna enda alveg dauðþreytt eftir daginn. Gerðum ekki mikið í dag enda léntum við svo seint eða um 6 leitið á dönskum tíma. En tókum okkur göngutúr um hverfið og fengum okkur kínverskan mat og röltum á Amager strönd. Og þar var fólk bara að synda í sjónum langt fram á kvöld…. bara kósý
Annars lítið að frétta, erfinginn bara mjög sáttur að vera í “útlöndum” og svo er lítil stelpa hérna á gistiheimilinu á svipuðum aldri og hún svo henni leiðist nú ekki
Stefnan tekin á verslunarferð… tívolí, kíkja á Strikið og chill á ströndinni á morgun
Var á Egilsstöðum í viku og við Begga, Hanna, Siggi og Hilli fórum í útileigu í Atlavík sem var mjög gaman eða alla vegna skemmti ég mér vel… og þá sérstaklega þegar allir voru farnir að sofa hehe
Hanna og Begga sváfu í þynnsta og minnsta tjaldi sem ég hef séð. Enda ætlar Hanna aldrei aftur að sofa í tjaldi. Svo kíkti Boggan á okkur á laugardagskvöldinu og Hanna yfirgaf okkur til að fara heim að elda gúllas handa kallinum
Shit hvað maður er orðinn gamall…. Vinkonur manns orðanar svo ráðsettar að þær fara spes ferð til að elda fyrir kallinn… Aldrei mundi ég nenna að keyra 50 kílómetra til að elda fyrir kallinn minn… Piff
Minn kall skal sko fá að sjá um sig sjálfur þegar ég fer í útileigur með vinkonum mínum eða e-ð álíka dæmi. En nóg um gúllasið… Svo dróum við Begga Sigga og Hilla til Borgarfjarðar Eystri… til að sýna þeim höfuðstöfðar austurlands….. muhaha
Ætluðum reyndar að sýna þeim fleiri staði en það gafst ekki tími til þess í þetta skipti
Er búin að skella inn myndum frá því í Atlavík og ef guð lofar þá skelli ég kannski nokkrum myndum inn frá Danmörku í kvöld eða á morgun…
Knús og kossar frá Danmörku
SvAnSí ÚtLeDiNgUr..
Er á Eskifirði
Jæja mín rúllaði bara á Eskifjörð að hitta Hönnu og við erum búnar að vera að tölvunördast meira og minna allan tímann… Skrítið þegar maður á loksins frí þá veit maður ekkert hvað maður á að gera. Harpa spurði mig þegar við vorum að keyra inn í bæinn hvort einhver hefði verið að prumpa? Hehe
Það var einhver bræðslulykt sem lá yfir bænum og erfiginn ekki sáttur… öskraði aftur í ojjjj vond lykt. Þannig mér hefur tekist að ala upp alvöru borgarbarn því hún er líka búin að biðja um að fá kfc og subway og hmmm hvorugt er í boði á austurlandinu.
Fékk geðveikt menningar sjokk þegar ég keyrði í gegn um Reyðarfjörð… shit það er komið hringtorg og allt maður og ég sá álverið í fyrsta skipti og það er ekkert smá stórt.
Fólk er að beila á reunioninu sem var búið að plana fyrir löngu síðan. Sumir vilja ekki vera í tjaldi, aðrir veikir og sumir segjast þurfa að vinna (á miðjunni)… En við Begga ætlum sko að skemmta okkur og Hanna mun gista í tjaldi sama hvort henni líkar það eða ekki
Spurning um að taka bara teip með sér og rifja upp gamlar minningar í leiðinni
Langar þig ekki að láta teipa þig aftur Hanna??
Jæja er farin að taka til…. allt í rúst eftir okkur hérna hjá Hönnu ops…
Og takið þátt í könnuninni minni…..
Svansí country girl
Er að fara að rúlla í sveitina….
Loksins allt tilbúið og ég er að leggja að stað…. Þarf reyndar að redda smá fyrir fóstra minn
Og hnúsa kallinn og þá er ég tilbúin að leggja í hann
Ætla að fara norður leiðina og er að fara að keyra þetta ein svo það er eins gott að ég verði vel vakandi.. Veður spáin fyrir helgina lítur mjög vel út.. Eins gott að það verði gott veður annars er ég ekki í góðum málum… daddara.. Allir í Atlavík um næstu helgi því þar verður boss boss gengið hehe
Sorry Hanna að ég sé ekki búin að henda þessum myndum af okkur síðan í “gamla daga” á netið, ég er búin að skanna slatta en hef bara ekki haft tíma til þess að setja þetta á netið.
Hvað er svo eigilega málið með ykkur kúkalabbar…. Það voru geðveikt margar heimsóknir á síðuna í gær en enginn kommentar eða kvittar í gestó
Gummi og Fannar það er bannað að halda partý meðan ég verð í burtu annars verður mér að mæta
Jæja ætla að hætta þessu mali og leggja að stað…
Sjáumst í Atlavík… Siggi og Hilli
Gekk alveg glimrandi vel ;)
Fór í þessa aðgerð mína kl 12:30 í dag. Var semsagt að láta laga á mér nebbann þar sem ég hef einhvern tímann nefbrotnað þegar ég var lítil og var að láta laga skekkjuna. Var að farast úr stressi því ég hef aldrei verið svæfð áður. Var búin að lofa að hætta að reykja en neinei.. mín bara keðjureykti áður en labbað var inn á Domus. Það kom nú ekki að sök.. hver getur svosem hætt að reykja undir svona miklu stressi og álagi hmm
Það gleymdist að gefa mér kæruleysis töflu og það fattaðist ekki fyrr en það var byrjað að dæla svefnlyfinu í mig. Man bara að ég spurði svæfingarlækninn hvort hún væri byrjuð og þá lognaðist ég út af
Þetta gekk vonum framar og ég trúði því ekki þegar ég vaknaði að þetta væri búið og spurði lækninn hvenær ég yrði eigilega svæfð hehe.. Er nú soldið bólgin núna… geðveikt fyndið því það er e-ð svo mikið bil á milli augnanna og svo er ég að fá mar við augun. En ég verð fljót að jafna mig… finn ekkert til eða alla vegna ekki ennþá
Anyways….. Fer beit austur til Egilsstaða í sólina þegar ég er búin að jafna mig. Sem verður líklegast á þriðjudaginn eða miðvikudag…. Þarf að hitta doksann á þriðjudaginn og aldrei að vita nema maður bruni strax austur eftir það… Get ekki beðið eftir því að komast til fallegasta staðsins á ÖLLU landinu!!!

Egilsstaðir í allri sinni dýrð

Atlavík þar sem stefnt er að því að fara í útileigu
Alveg að fara í sumarfrí…. Jibbí :)
Jæja mætt í vinnu og þetta er síðasti vinnudagurinn minn í langan tíma… Mæti aftur strax eftir verslunarmannahelgina.. tóm hamingja
Er alveg komin með ógeð á vinnunni minni svo þetta verður kærkomin hvíld
Var að koma frá tannsa og er eins og fílamaðurinn í framan. Svo ætla ég að láta pína mig ennþá meir á morgun því ég er að fara í “smá” aðgerð og er að skíta á mig af hræðslu núna, hef nefnilega aldrei verið svæfð áður. En mamma ætlar að fara með mér og halda í hendina á litlu stelpunni sinni ;)
Lét verða af því að fara í útileigu með Fríðu og co um síðustu helgi, þar sem ég flúði úr síðustu útileigu. Við fórum í Laugarás sem er rétt hjá Flúðum. Og með í för voru að sjálfsögðu Fríða, Danni, Eva, Siggi, Harpa og minns svo kom e-ð hnakkalið frá Selfossi sem Danni þekkir. Föstudagskvöldið var mjög fínt en ég verð að segja að laugardagskvöldið var ekkert spes… örugglega bara vegna þess að hnakkarnir voru ekki alveg að gera sig. En engu að síður mjög fín útileiga. Sýndi og sannaði hvað ég er góð í picturnary og babminton “hóst”
Spurning um að vera búin að æfa sig fyrir næstu útileigu. Svo í bakaleiðinni kíktum við Siggi og Harpa á Gullfoss og Geysi.
Djöfull var ég reið í gær… Fór til félagsráðgjafa sem ég hefði betur sleppt. Hef aldrei leitað til féló áður en gerði það til að tékka hvort ég ætti rétt á íbúð hjá þeim svo ég geti einhvern tímann klárað að mennta mig. Er nefnileg að leigja svo dýrt og hef engan áhuga á að kaupa mér íbúð eins og staðan er í dag. En ég hefði alveg eins getað farið út og talað við steinana argg… Skil ekki hvernig það er endalaust hægt að hjálpa fólki sem vill ekki gera neitt í sýnum málum en svo er ekki hægt að hjálpa þeim sem vilja standa sig. Æ nóg um þetta helv…
Fullt af góðum hlutum til að gleðjast yfir
Ég á aðeins eftir að vinna í 5 tíma…
Tecno partý liðið sem býr við hliðina á mér er að flytja…..
Ég er alveg að fara til Egilsstaða
Það eru 15 dagar í Danmerkurferðina….
Ætla að skella mér í tækniteiknun eftir áramót og klára ansk… stúdentinn í leiðinni
Við erum þrjú í deildinni í dag og það er nákvamlega ekkert að gera… Rakel ljósálfur er að lesa barnabækur. Spurning um að finna sér bók í hádeginu… svona til að drepa tímann
En jæja kveð í bili og ætla að fara að “vinna”
Djamm..djamm og brúðkaup :)
Helgin búin og komið að uppgjöri nei segi svona. En ég djammaði á föstudaginn með Lise og við byrjuðum bara að drekka heima hjá henni og svo var kíkt í partý í Hafnafirði til Hönnu og Fúsa og þar lénti hún Lise á séns með geðveikum töffara hehe
og þaðan var svo haldið á Cafe Aroma í Hafnafirði og svo að sjálfssögðu í bæinn á Cafe Victor.. ég elti útlendingana finnst þeir svo geðveikt hot
Sumir áhváðu að vera bara í dyrunum að hössla í staðinn fyrir að koma með fólkinu inn. Fínt kvöld þótt að það skemmtu sér kannski ekki allir eins vel :) Var soldið full þetta kvöld og þurfti víst aðstöð við að komast úr fötunum þegar heim var komið…. Guð minn góður :/
Svo var það laugardagurinn þá fór ég í brúðkaup til Þóru og Bjarka og þetta var svo fallegt og flott allt saman hjá þeim athöfnin, þau alveg glæsileg bæði tvo og flott veisla hjá þeim að hálfa væri nóg. Nokkur tár felld við athöfnina…. Innilega til hamigju aftur
Indislegt að sjá fólk svona ástfangið og hamingjusamt.. Kannski.. já kannski verður maður einhvern tímann svo heppin að elska einhvern meira en orð fá lýst og kannski ganga í heilagt hjónaband
En svo um kvöldið þá kom Lise til mín og við drukkum okkur til og létum svo Gumma æðislega bróðir minn (sem gerir allt fyrir systir sína) skutla okkur í partý í Grafarvoginn. Ég held að ég hafi látið alveg eins og fífl á leiðinni í partýið… vonandi talar vinkona Gumma við hann aftur. Það var ýmislegt gert í þessu partýi.. t.d reykti skór þar, fólk át chilli og síðan var e-ð rafmagnstæki þarna sem maður fékk stuð úr og það var látið ganga á milli fólks… jebb hevy stuð :) Einhver gaur drapst upp í herbergi og ég var að reyna að gefa honum rís súkkulaði en hann vildi það ekki hehe svo ég smellti bara mynd af kallinum. Held að mér hafi samt tekist að vekja hann með brussuganginum í mér. Æ man nú ekki alveg allt en Gummi bróðir sótti okkur Sigga og Lise og við kíktum e-ð á djammið í bænum svo var farið allt of seint heim.
Þrátt fyrir þetta svaðalega djamm bæði fös og lau tókst mér að mæta í vinnu báða dagana gjörsamlega ósofin. Ekki kannski það gáfulegasta og nú ætla ég að fara að slaka pínu á. Svaf bara í 17 klukkutíma á sunnudeginum.. Ætlaði bara aðeins að leggja mig og ætlaði að vakna 9 um kvöldið en neinei ég vaknaði um 5 leitið um nóttina… geðveikt óþægilegt en ég skreið svo aftur upp í og svaf til hádegis í dag… Geri aðrir betur
Þetta hefur nú ekki komið fyrir síðan ég veit ekki hvað og þessi svefn er líka e-ð að segja til sín núna vegna þess að klukkan er að verða hálf 4 og ég er enn á fótum
Stefnan sett á útileigu um næstu helgi í Húsafell með Fríðu, Danna og vonandi Sigga ef hann þorir. Það eru ógeðslega margir mávar hérna fyrir utan núna… kannski partý hjá þeim hehe. En vá hvað mig hlakkar til þegar veiðileyfið verður gert á þá eða var ekki verið að tala um það.. mig minnir alla vegna að ég hafi heyrt það einhvers staðar. Þá get ég skotið þá af svölunum hjá mér íha hehe
Pabbi geturu lánað mér byssu
En jæja búin að henda inn myndum frá því um helgina. Ætla að reyna að sofa smá svo ég verði ekki ónýt á morgun…
Þangað til næst….
Svanfríður nátthrafn
Langt síðan síðast…
Sælt veri fólkið…
Ég hef ekki nennt að blogga núna síðustu daga.. Alveg hámark létinnar held ég. Nei nei er þetta ekki bara þessi tími.. Hver nennir að hanga fyrir framan tölvuna í eins góðu veðri og hefur verið eða þannig. Sólin lét nú samt sjá sig í gær og í dag þannig að nú er kannski loksins komið sumar. En alla vegna þá er ég á lífi þið sem hafið verið að velta því fyrir ykkur
Síðasta helgi var rosalega fín, við Harpa hittum Lise, Ernu og Maríu 17 júní og fórum með þeim í bæinn svo var auðvitað kíkt í mat til múttu sem er alltaf snilld enda góður kokkur þar á ferð
Svo vildi erfinginn kíkja í Kópavoginn á Rútstún á leiðinni heim og hoppaði þar frá sér allt vit og rotaðist þegar heim var komið. Svo hittum við Lise og Ernu líka á sunnudeginum og kíktum með þeim í Húsdýragarðinn, rúntuðum og enduðum á Kfc í Mosó og vorum þar soldið lengi þar sem stelpunar voru ekki alveg á því að fara heim
Týpísk mömmu helgi… tók videó bæði kvöldin og hafði það geggjað kosý… Svo er öll vikan búin að fara í Brúðkaups undirbúning… nei ég er ekki að fara að gifta mig hehe… Er að fara í brúðkaup á laugardaginn til Þóru og Bjarka. Þóra var að vinna með mér hjá Pennanum, bara svona fyrir þá sem vita það ekki. Og er búin að vera að vesenast eftir vinnu nánast alla vikuna að finna mér föt og fleira. Búin að redda öllu… mikill léttir ;) Því það er svo týpíst ég að vera að redda öllu á síðustu stundu
En nei ég er að reyna að snúa því blaði við, reddaði meira að segja vegabréfunum okkar Hörpu í vikunni. Takk Fríða mín fyrir að vera svona þolinmóð að nenna að búðarápast með mér.. Við erum bara snillingar saman.. enda með sama aulahúmorinn.. Spól…spól hehe. Svo kíkti ég á Ásdísi, bumbubúann og co í vikunni.. alltof langt síðan ég hitti þau. Svo ég er nú búin að koma ýmislegu í verk þessa vikuna
Það er föstudagur á morgun íhaaa… ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. Helgin alveg fullbókuð hjá mér. Kaffihús á fös með Lise og kannski smá djamm með Hönnu og Fúsa eða alla vegna að kíkja á liðið, brúðkaup á lau og djamm með Lise og svo er Hanna vinkona í bænum og það er eins gott fyrir hana að djamma með mér
Og svo er spurning hvort það verði ekki bara koju fyllerí hjá okkur Rakeli ljósálfi á sunnudeginum þar sem við erum báðar í fríi á mánudeginum. Ég á ekki við áfengis vanda að stríða… nei hvaða vitleysa ;) Svo er að fara að standa við stóru orðin… var búin að lofa að skanna inn myndir frá því maður var ungur og vitlaus.. Þetta er allt í vinnslu Hanna mín
Ég held að ég sé farin að kalka þótt að það sé kannski full snemmt. Ég er búin að týna veskinu mínu svo oft upp á síðkastið að þetta er hætt að vera fyndið. Mér tókst að gleyma því í 10-11 í dag og svo gleymdi ég ljósunum á bílnum og það er líka búið að gerast soldið oft hehe. En ég lét bara strákana í vinnunni hafa pínu fyrir mér. Þeir gerðu heiðarlega tilraun til að ýta honum í gang en það gekk ekki og þá var ekkert annað en að kaupa sér startkapla til að koma druslunni í gang. Og þeir munu eflaust koma að góðum notum ef þetta heldur svona áfram
Það er einhver pirringur í mér…. gamlir fortíðar draugar að elta mig. Hvað er það??… Pæliði í því hvað það væri þægilegt ef það væri hægt að deleta úr heilanum á sér öllu sem maður vill ekki muna og situr í manni. Já það væri bara ljúft. Spurning líka að dæma ekki alla eftir sinni reynslu. Jæja cut hér áður en þetta fer að verða of persónulegt
Jæja ætli maður ætti ekki að fara að gera e-ð að viti. Var búin að lofa sjálfri mér því að fara að sofa snemma einu sinni… Því ekki mun ég sofa mikið um helgina
Spurning um að ná úr sér vonda skapinu og hamast á þessu ljóta tæki sem ég festi kaup í og kannski maður taki eina æfingu með Ágústu… Lyftum lóðum og brennum fitu. Já nú vildi kannski einhver vera fluga á vegg.. því þetta gæti orðið spaugilegt hehe
Svaní fitubolla kveðjur í bili….
Hvað er eiginlega að??????
Rakst á þetta í dag og við hlóum bara smá af þessu í vinnuni…. Þarna kemur ástæðan fyrir því að mér er ekki vel við útlendinga. Þeir eru bara skrítnir og ógeðslegir
Pjakk…. En alla vegna góð auglýsing fyrir Byko hehehe
Kíkið á þetta og lesið fréttina…. http://flass.net/fullfrettir.php?id=882&p=1